KSM-66 ashwagandha

Stutta svarið: KSM-66® er staðlaður útdráttur úr rót ashwagandha (Withania somnifera) með að minnsta kosti 5% withanolides. Það er það form ashwagandha sem flestar klínískar rannsóknir hafa verið gerðar á, og rannsóknir benda til þess að það geti stutt við streituþol, svefn og andlegt jafnvægi.

Hvað er ashwagandha?

Ashwagandha er runni sem vex á Indlandi og í Mið-Austurlöndum. Rótin hefur verið notuð í ayurvedískri hefð í yfir 3.000 ár sem rasayana, jurt til að styrkja og endurnæra. Í nútímaflokkun er hún adaptógen: jurt sem rannsóknir benda til að hjálpi líkamanum að laga sig að álagi.

Af hverju KSM-66?

KSM-66 er vörumerki á útdrætti, ekki tegund af plöntu. Þrennt greinir það frá ashwagandha frá framleiðendum sem nota ekki vísindalega aðferð við útdrátt til að hámarka virkni: eingöngu rótin er notuð (ekki laufin), náttúrulegu hlutfalli efnanna er haldið („full-spectrum“), og hver skammtur er staðlaður í a.m.k. 5% withanolides. Stöðlunin þýðir að hvert hylki er alltaf sami styrkur, og að niðurstöður rannsókna eiga við um það sem þú tekur.

Hvað segja rannsóknir?

  • Streita og kortisól: Í 60 daga tvíblindri rannsókn (Chandrasekhar o.fl., 2012) mældist hópurinn sem tók KSM-66 með marktækt lægri streitu og um 28% lægra kortisól en lyfleysuhópur.
  • Svefn: Rannsókn Langade o.fl. (2019) sýndi styttri tíma að sofna, lengri svefn og betri svefngæði eftir 10 vikur.
  • Líkamleg frammistaða: Wankhede o.fl. (2015) mældu meiri styrkaukningu og vöðvamassa hjá körlum í styrktarþjálfun samanborið við lyfleysu.
  • Konur á breytingaskeiði: Gopal o.fl. (2021) sýndu færri hitakóf og betri svefn eftir 8 vikur.

Hverjir ættu að fara varlega?

Ráðfærðu þig við lækni ef þú ert þunguð eða með barn á brjósti, með skjaldkirtilssjúkdóm eða lifrarsjúkdóm, tekur róandi lyf eða svefnlyf, eða ert með sjálfsofnæmissjúkdóm. Algengustu aukaverkanir í rannsóknum eru væg magaóþægindi og syfja.

Í þessum vörum frá Ingling

Algengar spurningar

Hvað er munurinn á KSM-66 og öðru ashwagandha?
KSM-66 er staðlaður rótarútdráttur með a.m.k. 5% withanolides, sem flestar rannsóknir nota. Ashwagandha frá framleiðendum sem nota ekki vísindalega aðferð við útdrátt er oft óstaðlað og getur innihaldið lauf.

Má taka ashwagandha með kaffi?
Já. Það er ekki örvandi og vinnur ekki gegn koffíni.

Er ashwagandha vanabindandi?
Engar vísbendingar um það. Hlé eru varúðarregla.

← Öll innihaldsefnin okkar