Náttúran er lausnin

En náttúran ein og sér er ekki töfralausn

Það tekur mörg ár að komast á slæman stað líkamlega og andlega. Að sama skapi tekur það tíma að vinda ofan af slíkri þróun og snúa henni við. Sá sem lofar þér öðru er að selja þér eitthvað annað en heilsu: skyndilausnir sem geta haft neikvæð áhrif þegar á líður.

Líkaminn er kerfisbundinn, alveg eins og náttúran. Við náum sem bestri heilsu þegar hún er studd af þekkingu, með réttum formúlum, réttum skömmtum og réttri lífeðlisfræðilegri nálgun. Þar kemur líftæknin inn.

Íslensk hráefni

Fjörugrösin okkar eru tínd villt við Íslandsstrendur. Þau eru alltaf klippt, aldrei rifin upp með rótum, því auðlindin þarf að endurnýja sig og hún gerir það ekki ef illa er gengið um hana.

Fjörugrös hafa verið nýtt á Íslandi frá landnámi og eru rík af joði og fjölbreyttum steinefnum.

Við notum líka astaxanthín ræktað á Íslandi, íslensk ber, klóþang úr Breiðafirði og salt unnið úr sjó hér við land. Við nýtum íslensk hráefni þar sem því verður við komið.

Vestrænt og austrænt eru ekki andstæður

Vestræn vísindi gefa okkur mælanlegan árangur og nákvæmni, á meðan austræn fræði gefa samhengi og jafnvægi. Við stillum þeim ekki upp á móti hvort öðru heldur nýtum samspilið á milli þeirra. Þau efla hvort annað og hjálpa okkur að svara sömu spurningunni: hvernig fær sá sem tekur vöruna sem mest út úr henni?

Formin skipta máli

Hráefni úr náttúrunni er upphafspunktur, ekki gæðastimpill. Magnesíum úr steinefni og magnesíum bundið glýsíni eru bæði náttúruleg, en líkaminn nýtir þau ekki eins.

Þess vegna veljum við formin sérstaklega:

  • Bisglýsínöt fyrir magnesíum, sink og járn, bundin amínósýru og mildari fyrir magann
  • Seleníserað ger fyrir selen, sama form og fæðan gefur
  • K2 sem MK-7 úr gerjun, með mun lengri líftíma í blóði en MK-4
  • KSM-66® ashwagandha, sá útdráttur sem flestar birtar rannsóknir nota
  • Astaxanthín frá Algalíf, ræktað hér á landi

Fæðubótarefni eru verkfæri, ekki lausn

Svefn, næring, hreyfing og streitustjórnun bera uppi heilsuna. Fæðubótarefni eru einn hlekkur í þeirri keðju, en mikilvægur hlekkur. Byrjaðu einfalt, settu þér raunhæf markmið og byggðu upp rútínu sem virkar til lengri tíma. Heilsa byggist upp með endurtekningu.