Gæði & framleiðsla

Allt gerist í Mosfellsbæ

Ekki hjá samningsframleiðanda erlendis sem framleiðir líka vörur fyrir keppinauta okkar. Hráefnin koma til okkar í Mosfellsbæ, þar sem við blöndum, hylkjum og pökkum sjálf. Þróun nýrra vara fer fram í sama húsi.

Framleiðslan fylgir íslenskum og evrópskum kröfum með áherslu á hreinleika, rekjanleika og stöðugleika.

Aðeins skilgreind virk efni

Við setjum ekkert í vöru sem við getum ekki rökstutt. Hvert virkt hráefni á sér vísindalegan bakgrunn, hefur staðlað útdráttarhlutfall þar sem það á við, og er notað í skammti sem byggir á því sem rannsóknir sýna, ekki því sem lítur best út á miðanum. Aukaefnum bætum við aðeins við þegar framleiðslan krefst þess, og þau koma alltaf fram í innihaldslýsingunni.

Leiðin frá hráefni í selda vöru

Móttaka. Hver sending kemur með greiningarvottorði, sem er borið saman við pöntunina áður en nokkuð fer á lager.

Blöndun. Allt er vigtað eftir skjalfestum forskriftum. Hver lota fær lotunúmer sem hægt er að rekja alla leið aftur í hráefnasendinguna.

Hylkjun. Þyngdareftirlit í gegnum alla keyrsluna, svo innihaldið standist það sem stendur á miðanum.

Pökkun. Lotunúmer og best fyrir-dagsetning á hverri vöru. Ef eitthvað kemur upp getum við alltaf rakið nákvæmlega hvaða vörur komu úr þeirri lotu.

Þróun sem tekur tíma

Nýjar formúlur verða til hér. Við lesum birtar rannsóknir, hönnum forskrift, keyrum prufulotu og lögum hana. Sumar vörur fara í gegnum nokkrar umferðir áður en þær standast það sem við ætluðum þeim.

„Það er ekkert mikilvægara en að halda áfram að byggja þetta upp með heilindum.“

Við eigum bara einn líkama

Hann er farartækið sem þarf að endast alla ævina. Þess vegna setjum við gæði og langvarandi virkni framar magni og skyndilausnum, og þess vegna er framleiðslan okkar hér, þar sem við sjáum með eigin augum hvað fer ofan í hverja einustu vöru.