12 vörur
Flokka eftir:
12 vörur
FYRSTA ÍSLENSKA PRE-WORKOUT'IÐ
Jarðarberjabragð og íslenskt sjávarsalt frá Saltverki, 460 mg í hverjum skammti.
Þegar þú svitnar tapar þú salti. Hver skeið ber 460 mg af sjávarflögusalti frá Saltverki og kalíumsítrat með steinefnunum sem fara á æfingunni eru komin í blönduna sjálfa.
Ráðlagður skammtur: 1 mæliskeið (~14,3 g)
Virk innihaldsefni í skammti:
L-Citrulline 2.000 mg • Beta-Alanine 1.000 mg • Taurine 1.000 mg • DL-Malic Acid 1.000 mg • Beetroot Extract 10:1 500 mg • Sjávarflögusalt frá Saltverki 460 mg • L-Tyrosine 420 mg • Cordyceps sinensis Extract 333 mg • L-Theanine 267 mg • Potassium Citrate 150 mg • Rhodiola rosea Extract 100 mg • Koffín 100 mg
Innihald:
Dextrose, Strawberry Flavoring, L-Citrulline, Citric Acid (E330), Beta-Alanine, Taurine, DL-Malic Acid (E296), Beetroot Extract 10:1, Sjávarflögusalt frá Saltverk, L-Tyrosine, Cordyceps sinensis Extract, L-Theanine, Potassium Citrate (E332), Rhodiola rosea Extract, Caffeine Anhydrous.
Pakkning
428 g • 30 skammtar • um 297 kr. á æfingu
Alla leið úr hlíðum Himalajafjalla kemur shilajit til Íslands í hylkjaformi.
Ein flaska inniheldur 60 hylki.
Shilajit hylki – náttúrulegur stuðningur fyrir orku og úthald
Shilajit er náttúrulegt efni sem myndast yfir aldir í fjalllendum svæðum og inniheldur 84 steinefni af þeim 102 sem mannslíkaminn þarf og mikið magn af fulvic sýru.
Shilajit er vel metið af mörgum, allt frá íþróttafólki til þeirra sem vilja efla almenna vellíðan og úthald.
Samkvæmt rannsóknum hefur shilajit verið tengt við:
✔ Aukna orku og lífsþrótt
✔ Stuðning við úthald og jafnvægi í daglegu lífi
✔ Meiri skerpu og einbeitingu
✔ Endurnærandi áhrif á líkamann eftir álag
✔ Stuðning við eðlilega starfsemi efnaskipta
✔ Betri upptöku steinefna
Fyrir þá sem hafa áhuga á vísindunum á bak við shilajit, hafa fjölbreyttar rannsóknir skoðað efnasamsetningu þess og mögulegan ávinning og er vitnað til margra hér fyrir neðan:
(https://www.jptcp.com/index.php/jptcp/article/view/6677)
Í gömlum sögum er sagt að Aristóteles hafi gefið Alexander mikla og hermönnum hans shilajit fyrir herförina og er sú saga notuð til að útskýra af hverju það er kallað „tortímari veikleika“.
Ekki er mælt með því að nota shilajit ef þú ert með sigðfrumublóðleysi, blóðkrómatósu eða thalassemia
Shilajit Ísland
Innihaldslýsing: Shilajit (500 mg)
Önnur innihaldsefni: Hylki úr jurtabeðmi
Nettóþyngd: 80 g
KSM-66 Ashwagandha er eitt af sterkustu afbrigðum Ashwagandha, með að minnsta kosti 5% hlutfall af Withanolides.
Ashwagandha er vel metinn af mörgum, frá íþróttamönnum til einstaklinga í breytingaskeiðum í lífinu.
Margir sem bæta Ashwagandha við daglegu rútínuna sína hafa sagt að þeir hafa upplifað:
- Aukna orku og lífsgleði.
- Meiri skýrleika
- Róandi tilfinningu og meira jafnvægi í daglegu lífi
- Upplyftingu á almennu skapi og lífsorku.
Fyrir þá sem hafa áhuga á vísindum bak við KSM-66 Ashwagandha, þá hafa fjölbreyttar rannsóknir skoðað mögulegan ávinning þess. Þú getur kynnt þér þessar niðurstöður á [https://ksm66ashwagandhaa.com/clinical-studies/].
Mundu, reynsla hvers einstaklings með Ashwagandha getur verið mismunandi. Þetta er ekki læknisfræðileg lausn, heldur náttúrulegt fæðubótarefni sem margir velja vegna þess hvernig það gæti hresst daglegt líf þeirra.
Shilajit hylki – náttúrulegur stuðningur fyrir orku og úthald
Shilajit er náttúrulegt efni sem myndast yfir aldir í fjalllendum svæðum og inniheldur 84 steinefni af þeim 102 sem mannslíkaminn þarf og mikið magn af fulvic sýru.
Shilajit er vel metið af mörgum, allt frá íþróttafólki til þeirra sem vilja efla almenna vellíðan og úthald.
Samkvæmt rannsóknum hefur shilajit verið tengt við:
✔ Aukna orku og lífsþrótt
✔ Stuðning við úthald og jafnvægi í daglegu lífi
✔ Meiri skerpu og einbeitingu
✔ Endurnærandi áhrif á líkamann eftir álag
✔ Stuðning við eðlilega starfsemi efnaskipta
✔ Betri upptöku steinefna
Fyrir þá sem hafa áhuga á vísindunum á bak við shilajit, hafa fjölbreyttar rannsóknir skoðað efnasamsetningu þess og mögulegan ávinning og er vitnað til margra hér fyrir neðan:
(https://www.jptcp.com/index.php/jptcp/article/view/6677)
Shilajit Ísland
Ashwagandha Ísland
Þessi vara er ekki ætluð til að greina, meðhöndla, lækna eða fyrirbyggja neina sjúkdóma
Innihaldslýsing:
KSM-66 Ashwagandha: KSM-66 Ashwagandha 450 mg, Mjólk.
Shilajit: Shilajit 500 mg.
Hylki úr jurtabeðmi
Rauðrófuextrakt Inglings
450 mg af útdrætti úr rauðrófum. Með háum styrkleika færðu kjarnann úr rauðrófunni í hverjum skammti.
Rauðrófur innihalda náttúruleg nítröt, trefjar og litarefni af flavín gerð sem eru mikið rannsökuð í tengslum við líkamsstarfsemi og næringu. Rauðrófur eru hluti af fjölbreyttri og hollri fæðu og hafa verið notaðar í langan tíma sem hluti af íþróttafæði og daglegu mataræði fólks víða um heim.
Þessi vara inniheldur engin örvandi efni, eingöngu náttúrulegt extrakt úr rauðrófum.
Innihaldslýsing: Rauðrófur 450mg
Önnur innihaldsefni: Hylki úr jurtabeðmi
Nettóþyngd: 168 g
Orkupakki – Kraftur og Orka í Einum Pakka
Fáðu sem mest út úr deginum með Orkupakkanum okkar! Við höfum sameinað vinsælustu flöskurnar okkar í einum pakka fyrir þá sem vilja upplifa fullkomna orku, jafnvægi og þrek. Með þessum pakka færðu Shilajit, Cordyceps, Ashwagandha, og Rauðrófur – allt saman á frábæru verði.
Hvað er innifalið?
- Shilajit: Náttúruleg orka og endurhleðsla.
- Cordyceps: Þol og frammistaða, uppáhaldið hjá íþróttafólki.
- Ashwagandha: Innri ró og streitustjórnun.
- Rauðrófur: Náttúruleg orka og næringarríkur stuðningur fyrir líkamann.
Af hverju að velja Orkupakkann?
- Sparaðu meira: Kaupir þú pakkann spararðu miðað við að kaupa vörurnar stakar.
- Allt sem þú þarft: Allar bestu vörurnar okkar í einum pakka fyrir kraft, jafnvægi og þol.
- Þægindi: Fáðu allt sent heim í einum pakka – einfalt og hagkvæmt.
Notkun:
- Fylgdu leiðbeiningum á hverri flösku fyrir hinn besta árangur
Magnesíum í forminu sem líkaminn tekur fljótt upp — með B6 sem kemur því inn í frumurnar.
Magnesíum kemur við sögu í yfir 300 efnahvörfum í líkamanum: vöðvasamdrætti, taugaboðum, orkuframleiðslu og svefni. Flestir fá of lítið úr fæðu. Magnesíum sítrat er vel leysanlegt, frásogast hratt og hentar þeim sem vilja finna muninn fljótt. B6-vítamínið í hylkinu hjálpar magnesíum að komast inn í frumurnar þar sem það vinnur.
Hvað er í dagskammtinum (3 hylki)?
- Magnesíum (sítrat) – 242 mg: 64% af viðmiðunargildi. Sítratformið er þekkt fyrir góða upptöku og mild áhrif á meltingu — heldur henni gangandi án þess að ganga of langt.
- B6-vítamín (pýridoxín) – 4,2 mg: 300% af viðmiðunargildi. B6 og magnesíum vinna saman: B6 eykur upptöku magnesíums inn í frumur og magnesíum þarf til að virkja B6.
Fyrir hvern?
Sinadráttur á nóttunni. Stífir vöðvar eftir æfingu. Þá sem sofa laust eða eiga erfitt með að slaka á að kvöldi. Þá sem drekka mikið kaffi — koffín eykur útskilnað magnesíums.
Hvernig notarðu það?
Þrjú hylki á dag með mat, eða öll að kvöldi ef markmiðið er svefn og slökun. Sinadráttur og vöðvaspenna láta yfirleitt undan innan 1–2 vikna.
Pakkning: 90 hylki • 30 daga skammtur • 3 hylki á dag
Innihald í hylki: Magnesíum sítrat 498 mg, pýridoxín HCl 1,7 mg. Hylki úr jurtabeðmi. Engin hjálparefni.
Framleitt á Íslandi af Ingling ehf.
Cordyceps – náttúrulegt úthald og orkuaukandi sveppur
Cordyceps (Cordyceps sinensis) er sveppur sem hefur verið notaður í hefðbundnum asískum lækningum öldum saman fyrir áhrif sín á orku, úthald og almenna vellíðan. Á síðustu árum hefur hann vakið áhuga íþróttafólks og þeirra sem vilja bæta orkunýtingu líkamans á náttúrulegan hátt.
Hann hefur verið hluti af þjóðlegum siðum og hefðum öldum saman, sérstaklega í Kína. Cordyceps varð heimsfrægur árið 1993 þegar kínverskar hlaupakonur settu heimsmet og þjálfari þeirra nefndi hann sem hluta af undirbúningnum.
Helstu áhrif cordyceps:
-
Stuðlar að betri orkunýtingu:
Cordyceps inniheldur efnasambönd eins og cordycepin og adenósín, sem geta stutt við framleiðslu á ATP (adenósínþrífosfat) – orkuefninu sem frumur nota til að knýja líkamlega virkni. -
Bætir súrefnisnýtingu:
Sumar rannsóknir benda til að cordyceps geti bætt súrefnisnýtingu líkamans, sem gæti leitt til aukins úthalds við líkamlega áreynslu. -
Andoxunarefni og bólguminnkandi eiginleikar:
Cordyceps er ríkur af andoxunarefnum sem geta hjálpað til við að draga úr oxunarálagi og styðja við endurheimt eftir áreynslu. -
Stuðningur við ónæmiskerfið:
Sveppurinn inniheldur beta-glúkana og önnur efni sem talin eru styrkja ónæmiskerfið og auka mótstöðu gegn streitu.
Hverjum hentar cordyceps?
- Íþróttafólki sem vill styðja við úthald og endurheimt
- Þeim sem vilja auka daglega orku á náttúrulegan hátt
- Fólki sem leitar leiða til að styðja við almenna vellíðan og ónæmiskerfið
Ein flaska inniheldur 90 hylki.
Innihald: Cordyceps 530 mg, dextrín
Nettóþyngd: 168 g
Þolpakki – orka og úthald í einum pakka
Ef þú ert að leita að hámarksþoli og auknu úthaldi er Þolpakki lausnin. Þrjár náttúrulegar vörur sem vinna saman að orku, þreki og jafnvægi: Cordyceps, Rauðrófuextrakt og Shilajit.
Hvað er innifalið?
- Cordyceps: Hefðbundin lausn til að styðja súrefnisnýtingu og frammistöðu.
- Rauðrófuextrakt: Náttúrulegt nítrat sem styður við orku og úthald.
- Shilajit: Fulvic sýra og steinefni fyrir viðvarandi orku og jafnvægi.
Af hverju Þolpakkann?
- Stuðningur við þol: Vörurnar eru valdar til að styðja frammistöðu og endurheimt.
- Náttúrulegt val: Hrein innihaldsefni án aukaefna.
- Hagkvæmni: Pakkinn er ódýrari en vörurnar keyptar stakar.
Notkun: Fylgdu leiðbeiningum á hverri flösku. Mælt er með daglegri notkun.
Framleitt í Mosfellsbæ.
Átta B-vítamín í fullum skömmtum og magnesíum í forminu sem líkaminn tekur upp.
B-vítamín eru vinnuhestarnir í orkubúskap líkamans — þau breyta matnum sem þú borðar í orku sem þú getur notað. Þau geymast ekki í líkamanum og þarf því að fylla á daglega. B-súper skilar öllum átta í tveimur hylkjum, með 131 mg af magnesíum bisglýsínati til að ljúka verkinu.
Hvað er í dagskammtinum (2 hylki)?
- Magnesíum (bisglýsínat) – 131 mg: Bisglýsínat er magnesíum bundið amínósýrunni glýsíni. Það fer mjúklega í gegnum meltinguna og gefur ekki þau lausu-maga-áhrif sem ódýrari magnesíumform gera.
- B1 þíamín – 3,6 mg · B2 ríbóflavín – 3,4 mg · B3 níasín – 35 mg · B5 pantóþensýra – 12,5 mg: Orkuvítamínin. Vinna saman við að losa orku úr kolvetnum, fitu og próteini.
- B6 pýridoxín – 3,6 mg · B9 fólínsýra – 1.071 mcg · B12 kóbalamín – 5,6 mcg: Þrenningin fyrir taugakerfið, blóðmyndun og hómósystein-jafnvægi.
- B7 bíótín – 50 mcg: Fyrir hár, húð og neglur.
Fyrir hvern?
Fyrir þá sem eru þreyttir án ástæðu, vinna langa daga, drekka kaffi til að komast í gegnum síðdegið eða borða einhæft. Grænmetisætur og vegan þurfa B12 utan úr — þetta er einfaldasta leiðin.
Hvernig notarðu það?
Tvö hylki með morgunmat. B-vítamín eru vatnsleysanleg og best tekin með mat, ekki á tóman maga. Munur á orku finnst yfirleitt innan tveggja vikna.
Pakkning: 60 hylki • 30 daga skammtur • 2 hylki á dag
Innihald í hylki: Magnesíum bisglýsínat 465 mg, B-complex blanda 30 mg, bíótín. Hylki úr jurtabeðmi. Engin hjálparefni.
Framleitt á Íslandi af Ingling ehf.
Járn sem fer ekki illa í magann. Með C-vítamíni sem þrefaldar upptökuna og kopar sem kemur járninu í blóðið.
Flestir hætta á járni af sömu ástæðu: magaverkir, hægðatregða, ógleði. Það er járnsúlfat — ódýra formið. Járn bisglýsínat er járn bundið amínósýrunni glýsíni, fer í gegnum meltinguna án þess að erta hana og frásogast betur. FeBC stendur fyrir Fe (járn), B (bisglýsínat) og C (C-vítamín) — þrjú atriði sem saman gera járnið að einhverju sem þú getur tekið daglega.
Hvað er í hylkinu?
- Járn (bisglýsínat) – 14 mg: 100% af viðmiðunargildi. Fyrir blóðmyndun, súrefnisflutning og orku. Járnskortur er algengasti næringarskortur heims — og lýsir sér sem þreyta sem svefn lagar ekki.
- C-vítamín – 425 mg: Breytir járni í formið sem þarmarnir taka upp. Rannsóknir sýna allt að þrefalda upptöku járns þegar C-vítamín er tekið samtímis.
- Kopar (bisglýsínat) – 1 mg: Án kopars kemst járn ekki úr geymslu í blóðið. Járnbætiefni án kopars geta valdið koparskorti með tímanum.
Fyrir hvern?
Konur á miklum blæðingum, grænmetisætur og vegan, þar sem járn úr jurtum frásogast illa. Þolíþróttafólk. Þá sem hafa mælst lágir í ferritíni.
Hvernig notarðu það?
Eitt hylki á dag, helst á fastandi maga eða milli mála — járn frásogast best án matar. Ekki með kaffi, tei eða mjólk; þau hindra upptöku. Ferritín tekur 2–3 mánuði að byggjast upp.
Pakkning: 60 hylki • 60 daga skammtur • 1 hylki á dag
Innihald í hylki: Askorbínsýra 425 mg, járn bisglýsínat 70 mg, kopar bisglýsínat 3,5 mg. Hylki úr jurtabeðmi. Engin hjálparefni.
Framleitt á Íslandi af Ingling ehf.
Túrmerik sem leysist upp í vatni — og þar með í líkamanum. Venjulegt túrmerikduft fer að mestu beint í gegn.
Kúrkúmín, virka efnið í túrmerik, er nánast óleysanlegt í vatni og frásogast því illa úr venjulegu dufti. Gyllt túrmerik notar vatnsleysanlegt túrmerik-extrakt sem leysist upp í meltingarvegi í stað þess að sitja þar sem korn, og bætir við svörtum pipar, en píperínið í honum hægir á niðurbroti kúrkúmíns í lifur. Sama krydd, margföld nýting.
Hvað er í dagskammtinum (2 hylki)?
- Vatnsleysanlegt túrmerik – 840 mg, þar af kúrkúmínóíðar ~86 mg: Fyrir liði, bólgujafnvægi og meltingu. Kúrkúmín er eitt mest rannsakaða jurtaefni heims — yfir tíu þúsund birtar rannsóknir.
- Svartur pipar – 160 mg: Píperínið í svörtum pipar getur margfaldað aðgengi kúrkúmíns — án þess er túrmerik að mestu sóun.
Fyrir hvern?
Stífa morgna. Hné og mjaðmir sem mótmæla eftir æfingu. Þá sem hafa prófað túrmerik áður og fundið lítinn mun — líklegast var það upptökan, ekki jurtin.
Hvernig notarðu það?
Tvö hylki á dag með mat. Liðaáhrif byggjast upp yfir 4–8 vikur; gefðu því tímann.
Pakkning: 90 hylki • 45 daga skammtur • 2 hylki á dag
Innihald í hylki: Vatnsleysanlegt túrmerik-extrakt 420 mg, svartur pipar 80 mg. Hylki úr jurtabeðmi. Engin hjálparefni.
Framleitt á Íslandi af Ingling ehf.
Lignosus -Tiger Milk Sveppur í skammtapökkum með ástaraldin dufti
Lignosus er einstök blanda af Tiger Milk sveppi og ástaraldin extrakti sem er hönnuð til að styðja við öndunarheilbrigði og bæta lungnastarfsemi. Hver skömmtunarpakki inniheldur 500 mg af hreinum lífrænum Tiger Milk sveppi og 1 g af náttúrulegu passion ávaxtaþykkni sem auðveldar inntöku og gefur frískandi bragð.
Tiger Milk sveppurinn er þekktur fyrir að styðja öndunarfærin og hefur langa sögu í hefðbundinni læknisfræði, þar sem hann er notaður til að létta á öndunaróþægindum og styrkja ónæmiskerfið. Þessi einstaka blanda er sérhönnuð til að styðja við heilbrigði lungna og öndunarvegar, hvort sem það er til að létta á hósta, draga úr slímmyndun eða hreinsa loftvegina.
Mögulegir ávinningar úr rannsóknum:
- Styður heilbrigða öndun og lungnastarfsemi
- Hreinsar og afeitrar lungun
- Léttir á hósta og dregur úr slímmyndun
- Hjálpar við nefstíflu og eykur loftflæði
- Náttúrulegur stuðningur fyrir fólk með COPD (langvinna lungnateppu)
- Styrkir ónæmiskerfið með náttúrulegum hætti
- Hjálpar við ofnæmisviðbrögð í öndunarvegi
- Eykur mótstöðuþol reykingafólks og styrkir ónæmi þess
- Léttir á sinusaóþægindum og bætir öndun
Nánari upplýsingar um notkun:
- Stærð: 30 pakkar í hverri öskju – hver 1,5 g pakki inniheldur 500 mg af Tiger Milk sveppi og 1 g af passion ávaxtaþykkni
- Ráðlagt neyslutímabil: Fyrstu áhrifin koma fram innan 30 daga, en mælt er með 90 daga ferli til að upplifa alla virkni Lignosus.
- Hentar fyrir: Allir fullorðnir og börn frá tveggja ára aldri. Neytið einu sinni daglega eftir morgunmat eða fyrstu máltíð.
- Inntaka: Hellið innihaldinu beint í munn eða blandið við vatn eða uppáhaldsdrykki eins og te, safa eða kaffi.
Notkunarleiðbeiningar:
- Fullorðnir (7 ára og eldri): Takið 1 til 2 bréf daglega.
- Börn (2–6 ára): Takið hálft bréf daglega. Geymið hinn helminginn í íláti fyrir næsta dag.
Geymsla: Geymið á köldum og þurrum stað, forðist beint sólarljós. Engin kæling er nauðsynleg. Neytið um leið og bréfið hefur verið opnað.
Innihaldslýsing: Tiger Milk sveppur, Passion ávaxtaþykkni.

