SKIL & ENDURGREIÐSLUR

30 daga skilaréttur

Þú getur skilað óopnaðri vöru í upprunalegum umbúðum, með órofnu innsigli, innan 30 daga frá því að þú tókst við henni og fengið hana endurgreidda að fullu. Þetta gildir líka um vörur sem keyptar eru á tilboði. Ef lengri tími er liðinn, hafðu samband og við skoðum málið með þér.

Af heilsuverndar- og hreinlætisástæðum er ekki hægt að skila fæðubótarefnum eftir að innsigli hefur verið rofið, sbr. 18. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga. Við viljum þó alltaf koma til móts við viðskiptavini okkar, svo ekki hika við að heyra í okkur og við finnum lausn saman.

Svona skilar þú vöru

  1. Sendu okkur tölvupóst á ingling@ingling.is með pöntunarnúmeri og upplýsingum um vöruna sem þú vilt skila.
  2. Sendu vöruna til okkar innan 14 daga frá því að þú lætur okkur vita:
    Ingling ehf., Brúarfljót 2, 270 Mosfellsbær
  3. Þú greiðir kostnað af því að senda vöruna til baka. Við mælum með rekjanlegri sendingu.

Endurgreiðsla

Við endurgreiðum kaupverðið og upphaflegan sendingarkostnað innan 14 daga frá því að þú lést okkur vita. Við megum bíða með endurgreiðslu þar til varan hefur borist okkur. Endurgreitt er með sömu greiðsluleið og notuð var við kaupin.

Gölluð, skemmd eða röng vara

Ef vara er gölluð, skemmd við afhendingu eða ekki sú sem þú pantaðir, hafðu samband sem fyrst á ingling@ingling.is, helst með mynd. Við sendum þér nýja vöru eða endurgreiðum að fullu, og greiðum allan sendingarkostnað.

Réttindi þín

Þessir skilmálar takmarka ekki lögbundin réttindi þín sem neytanda. Ef ágreiningur kemur upp sem við leysum ekki saman getur þú leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa (kvth.is).

Hafðu samband

Ingling ehf., kt. 440324-0290
Brúarfljót 2, 270 Mosfellsbær
ingling@ingling.is · 497 0078