SENDINGAR & AFHENDING

Afgreiðsla pantana

Pantanir sem berast fyrir kl. 12:00 á virkum dögum eru afgreiddar samdægurs til flutningsaðila. Pantanir sem berast eftir hádegi eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag.

Sendingarleiðir

Við sendum pantanir með Dropp og Póstinum, og þú velur þá leið sem hentar þér best í greiðsluferlinu.

Dropp
Sendingar eru að jafnaði afhentar samdægurs á höfuðborgarsvæðinu og Suðvesturhorninu. Annars staðar á landinu er miðað við afhendingu næsta virka dag.

Pósturinn
Á höfuðborgarsvæðinu er í boði afhending samdægurs í Póstbox eða með heimsendingu þegar sending berst Póstinum innan tilgreindra tímamarka. Annars er almennt miðað við afhendingu næsta virka dag. Sendingar milli landshluta geta tekið allt að tvo virka daga og afhending í dreifbýli getur tekið lengri tíma.

Afhendingartími getur breyst vegna álags, veðurs eða annarra aðstæðna hjá flutningsaðila. Þú færð tilkynningu frá flutningsaðilanum þegar sendingin er komin í kerfið hjá honum og aftur þegar hún er tilbúin til afhendingar.

Sendingarkostnaður

Frí sending er á öllum pöntunum yfir 15.000 kr. Fyrir minni pantanir reiknast sendingarkostnaður í greiðsluferlinu samkvæmt gjaldskrá valinnar sendingarleiðar.

Spurningar um sendingu?

Hafðu samband á ingling@ingling.is eða í síma 497 0078.