6 vörur
Flokka eftir:
6 vörur
Allir vilja vera betri útgáfa af sjálfum sér – andlega, líkamlega og sálrænt. Okkar öflugasta sveppablanda er hönnuð með þessa hugsjón í huga. Þessi einstaka samsetning er samruni fornrar visku og nútímavísinda, fullkomin fyrir þá sem sækjast eftir krafti náttúrunnar til að hámarka sig.
Hvað er í blöndunni?
-
Lion's Mane (Hericium erinaceus, 600 mg): Rannsóknir benda til að þessi sveppur geti örvað framleiðslu taugavaxtarþáttar (NGF), sem er mikilvægur fyrir heilastarfsemi og minni. Þetta gæti útskýrt hvers vegna Lion's Mane er oft tengdur við bætt minni og einbeitingu.
-
Cordyceps (Cordyceps sinensis, 400 mg): Rannsóknir hafa sýnt að Cordyceps getur aukið framleiðslu á adenósínþrífosfati (ATP), sem er lykilorkuefni fyrir vöðva. Þetta gæti leitt til aukins úthalds og orku, sem skýrir vinsældir hans meðal íþróttafólks.
-
Reishi-útdráttur (Ganoderma lucidum, 600 mg): Rannsóknir benda til að reishi geti styrkt ónæmiskerfið og haft bólgueyðandi áhrif. Einnig hefur verið sýnt fram á að hann geti haft róandi áhrif, sem gæti stuðlað að betri svefni og minni streitu.
-
Chaga (Inonotus obliquus): Chaga er ríkur af andoxunarefnum, sem geta verndað frumur gegn oxunarálagi. Rannsóknir hafa einnig sýnt að Chaga getur styrkt ónæmiskerfið og stuðlað að almennri vellíðan.
Sameiginleg áhrif þessara sveppa veita þér kraftinn til að standa upp úr mannfjöldanum – hvort sem þú ert á leið í ræktina, í gegnum erfiðan vinnudag, eða bara að leitast við að vera besta útgáfan af sjálfum þér.
Önnur innihaldsefni: Hylki úr jurtabeðmi, dextrín
Nettóþyngd: 240 g
Lion’s Mane – Náttúrulegur stuðningur fyrir skýrleika og einbeitingu
Lion’s Mane (Hericium erinaceus) er sveppur sem hefur lengi verið notaður í hefðbundinni austurlenskri þekkingu og inniheldur efnasambönd eins og hericenones og erinacines.
Lion’s Mane er vel metinn af mörgum, frá námsmönnum og fagfólki til þeirra sem vilja auka skerpu og hugarró.
Samkvæmt rannsóknum hefur Lion’s Mane verið tengdur við:
✔ Stuðning við eðlilega heilastarfsemi og taugavöxt
✔ Meiri skýrleika og einbeitingu
✔ Betri minni og námshæfni
✔ Jafnvægi í taugakerfi og hugarró
✔ Stuðning við almenna vellíðan og orku
Fyrir þá sem hafa áhuga á vísindunum á bak við Lion’s Mane, hafa fjölbreyttar rannsóknir skoðað efnasamsetningu þess og mögulegan ávinning samantekt er hægt að finna hér:
(https://www.researchgate.net/publication/379084739_Unlocking_the_potential_of_Lion%27s_Mane_Mushroom_Hericium_erinaceus)
Innihaldslýsing: Lion's Mane 600mg
Önnur innihaldsefni: Hylki úr jurtabeðmi
Nettóþyngd: 168 g
Kaffið vekur þig. Sveppirnir sjá um restina.
Sveppakaffi er blanda af frostþurrkuðu kaffi (80%) og útdrætti úr fjórum lækningasveppum (20%), samtals 1.700 mg af sveppum í hverjum bolla. Lion's Mane, Reishi, Cordyceps og Chaga. Ein skeið, heitt vatn, hrært. Sama morgunrútína og áður, en með skerpu sem endist fram yfir hádegi í stað þess að hrynja klukkan tvö.
Koffínið er 75 mg í bolla. Nóg til að vakna, ekki nóg til að skjálfa. Restina af orkunni sækja sveppirnir.
Hvað er í bollanum?
- Lion's Mane (Hericium erinaceus), 510 mg: Fókus-sveppurinn. Rannsakaður fyrir áhrif á taugavaxtarþátt (NGF), minni og einbeitingu. Þetta er sveppurinn sem gerir muninn á kaffi sem vekur þig og kaffi sem heldur þér skýrum.
- Reishi extrakt (Ganoderma lucidum), 510 mg: Sveppur róseminnar. Jafnar taugakerfið á móti koffíninu svo orkan komi án óróleika, skerpa án spennu.
- Cordyceps (Cordyceps sinensis), 340 mg: Sveppurinn sem íþróttafólk þekkir. Tengdur við ATP-framleiðslu frumna og súrefnisnýtingu, úthaldið sem koffín eitt og sér gefur ekki.
- Chaga (Inonotus obliquus), 340 mg: Vex á birkitrjám norðursins og er eitt andoxunarríkasta hráefni náttúrunnar. Vörnin í blöndunni.
Af hverju kaffi en ekki hylki?
Af því að þú drekkur kaffi hvort sem er. Hylki gleymast, morgunkaffið gleymist ekki. Sveppakaffi setur dagskammtinn af fjórum sveppum inn í venju sem þú átt nú þegar, með engum aukaskrefum.
Hvernig notarðu það?
Ein sléttfull mæliskeið (8,5 g) í bolla af heitu vatni, hræra. Einnig mjög gott uppáhellt í kaffivél með kaffifilter. Mæliskeið fylgir í dósinni.
Framleitt á Íslandi
Blandað og pakkað hjá Ingling í Mosfellsbæ. Sveppirnir eru extrakt, ekki hráduft: minna magn, meiri virkni.
Innihald í skammti (8,5 g): Frostþurrkað kaffi 6,8 g (80%), Lion's Mane extrakt 510 mg, Reishi extrakt 510 mg, Cordyceps extrakt 340 mg, Chaga extrakt 340 mg. Koffín: 75 mg.
Pakkning: 170 g • 20 skammtar • mæliskeið fylgir
Geymsla: Lokað, á þurrum stað. Frostþurrkað kaffi dregur í sig raka, lokaðu dósinni vel.
Formúlan Skýr Fókus er hönnuð til að koma þér sem lengst án bakslags. Hráefnin blandast saman á lífeðlisfræðilegan hátt til að byggja bæði langtímaundirstöðu fyrir heila og daglega virkni.
Kjarni formúlunnar liggur í samspili boðefnaforvera og frumubyggingar. Citicoline, sem forveri phosphatidylcholine og acetylcholine, tengist uppbyggingu frumuhimna og boðefnakerfa, á meðan L-tyrosine tengist efnaskiptum catecholamine-boðefna. Samhliða eru þessi efni oft rannsökuð í samhengi við taugakerfisvirkni og hugræna ferla.
Adaptógenin Panax ginseng og Rhodiola rosea eru sett saman með hliðsjón af rannsóknum sem fjalla um aðlögun líkamans að álagi og hugrænu áreiti. Þessi hráefni eru almennt skoðuð í tengslum við streituviðbragðskerfi líkamans, þar á meðal HPA axis, og mynda þannig grunn að jafnvægisnálgun frekar en örvun.
Blóðflæði og næringarflutningur eru hluti af heildarhönnun formúlunnar. Pine bark extract og Ginkgo biloba eru bæði mikið rannsökuð í tengslum við blóðrásarkerfið og æðaflutning, sem í fræðilegu samhengi tengist flutningi súrefnis og næringarefna til vefja, þar á meðal heilavefs.
Taugakerfisvernd og frumujafnvægi eru studd með efnum sem hafa verið rannsökuð fyrir oxunarjafnvægi og frumuvörn. Astaxanthin, Bacopa og íslensk fjallagrös falla í þann flokk, þar sem þau hafa verið skoðuð í tengslum við oxunarálag, frumuhimnur og lífvirk plöntuefni.
Lion’s Mane (Hericium erinaceus) tengist þessari heildarmynd í gegnum rannsóknir sem fjalla um nerve growth factor (NGF) og neuroplasticity, einkum í frumurannsóknum og dýramódelum, og bætir þannig við vídd sem snýr að uppbyggingu og viðhaldi taugakerfis.
Í heild er formúlan hönnuð sem samþætt kerfi þar sem hvert hráefni hefur skilgreint hlutverk innan stærra lífeðlisfræðilegs samhengis.
Shilajit hylki – náttúrulegur stuðningur fyrir orku og úthald
Shilajit er lífrænt efni sem myndast yfir aldir í fjalllendum svæðum og inniheldur 84 steinefni af þeim 102 sem mannslíkaminn þarf og mikið magn af fulvic sýru.
Shilajit er vel metið af mörgum, allt frá íþróttafólki til þeirra sem vilja efla almenna vellíðan og úthald.
Samkvæmt rannsóknum hefur shilajit verið tengt við:
✔ Aukna orku og lífsþrótt
✔ Stuðning við úthald og jafnvægi í daglegu lífi
✔ Meiri skerpu og einbeitingu
✔ Endurnærandi áhrif á líkamann eftir álag
✔ Stuðning við eðlilega starfsemi efnaskipta
✔ Betri upptöku steinefna
Fyrir þá sem hafa áhuga á vísindunum á bak við shilajit, hafa fjölbreyttar rannsóknir skoðað efnasamsetningu þess og mögulegan ávinning og er vitnað til margra hér fyrir neðan:
(https://www.jptcp.com/index.php/jptcp/article/view/6677)
Lion’s Mane – Náttúrulegur stuðningur fyrir skýrleika og einbeitingu
Lion’s Mane (Hericium erinaceus) er sveppur sem hefur lengi verið notaður í hefðbundinni austurlenskri þekkingu og inniheldur efnasambönd eins og hericenones og erinacines.
Lion’s Mane er vel metinn af mörgum, frá námsmönnum og fagfólki til þeirra sem vilja auka skerpu og hugarró.
Samkvæmt rannsóknum hefur Lion’s Mane verið tengdur við:
✔ Stuðning við eðlilega heilastarfsemi og taugavöxt
✔ Meiri skýrleika og einbeitingu
✔ Betri minni og námshæfni
✔ Jafnvægi í taugakerfi og hugarró
✔ Stuðning við almenna vellíðan og orku
Fyrir þá sem hafa áhuga á vísindunum á bak við Lion’s Mane, hafa fjölbreyttar rannsóknir skoðað efnasamsetningu þess og mögulegan ávinning samantekt er hægt að finna hér:
(https://www.researchgate.net/publication/379084739_Unlocking_the_potential_of_Lion%27s_Mane_Mushroom_Hericium_erinaceus)
Innihaldslýsing: Lion's Mane 600mg
Innihaldslýsing:
Shilajit: Shilajit 500mg
Lion's Mane: Lion's Mane 600mg
Önnur innihaldsefni: Hylki úr jurtabeðmi
Heilaga þrennan sameinar þrjár af blöndum Ingling í einn pakka sem fylgir þér frá morgni til kvölds.
Skýr Fókus að morgni fyrir einbeitingu og andlega skerpu, með citicoline, Panax ginseng, bacopa og Lion's Mane.
Litla Greddublandan Stærri yfir daginn fyrir orku og kynorku, með maca, fenugreek, tribulus og sinki.
Djúpur svefn að kvöldi fyrir ró og endurnærandi svefn, með glýsíni, magnesíum, KSM-66® ashwagandha, melatóníni og íslensku sjávarkollageni.
Þrjár krukkur, 180 hylki hver, 30 daga skammtur. Allt framleitt í Mosfellsbæ.

