Orkupakki

(9)

Fjórar vörur fyrir orku, þol og innri ró — shilajit, cordyceps, KSM-66® og rauðrófur.

  • Shilajit 500 mg í hylki
  • Cordyceps fyrir úthald
  • KSM-66® staðlað extrakt
  • Náttúruleg nítröt úr rauðrófum

18,960 kr 15,168 kr

Til á lager

Fljótleg og örugg afhending með Dropp og Póstinum.

Sent samdægurs á höfuðborgarsvæðinu ef pantað er fyrir kl. 12:00.

Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 15.000 kr.

Shilajit — ráðlagður dagskammtur 1 hylki

Shilajit 500 mg í hylki

Cordyceps — ráðlagður dagskammtur 1–2 hylki

Cordyceps 530 mg í hylki

KSM-66 Ashwagandha — ráðlagður dagskammtur 1 hylki

KSM-66® Ashwagandha extrakt 400 mg í hylki

Rauðrófu extrakt — ráðlagður dagskammtur 1 hylki

Rauðrófuútdráttur 450 mg í hylki

Önnur innihaldsefni

Hylki úr jurtabeðmi (HPMC) • Dextrín (Cordyceps)

Pakkning

Shilajit: 60 hylki • 60 daga skammtur • Nettóþyngd 80 g

Cordyceps: 90 hylki • 45–90 daga skammtur • Nettóþyngd 168 g

KSM-66: 90 hylki • 90 daga skammtur • Nettóþyngd 100 g

Rauðrófu extrakt: 90 hylki • 90 daga skammtur • Nettóþyngd 168 g

Ofnæmisvaldar

KSM-66 Ashwagandha inniheldur MJÓLK. Aðrar vörur í pakkanum innihalda enga þekkta ofnæmisvalda.

Sérstök varúð

Ekki er mælt með shilajit fyrir þá sem eru með sigðfrumublóðleysi, blóðkrómatósu eða thalassemiu.

Hverjir ættu að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk?

Leitið ráðgjafar hjá lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni fyrir notkun ef þið:

  • Eruð þunguð eða með barn á brjósti.
  • Takið lyf eða glímið við undirliggjandi sjúkdóm.
  • Eruð með ofnæmi fyrir einhverjum innihaldsefna vörunnar.

Leiðbeiningar um notkun og geymslu

Fylgið ráðlögðum dagskammti. Ekki skal fara yfir ráðlagðan dagskammt. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu eða heilbrigðs lífsstíls. Geymið á köldum og þurrum stað, fjarri beinu sólarljósi. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Shilajit (500 mg)

Shilajit er náttúrulegt efni sem myndast á löngum tíma við hægt niðurbrot plöntuefna í fjalllendi. Efnið ber fulvic sýru og fjölbreytt snefilefni. Rannsóknir benda til þess að shilajit geti stutt við orkuframleiðslu frumna, úthald og upptöku annarra næringarefna.

Cordyceps

Cordyceps (Cordyceps sinensis) inniheldur efnasambönd eins og cordycepin og adenósín, sem geta stutt við framleiðslu á ATP — orkuefninu sem frumur nota til að knýja líkamlega virkni. Sumar rannsóknir benda til að cordyceps geti bætt súrefnisnýtingu líkamans.

KSM-66® Ashwagandha extrakt (400 mg)

KSM-66® er mest rannsakaða staðlaða form ashwagandha (Withania somnifera) sem völ er á og er staðlað í minnst 5% withanolíð. Rannsóknir benda til þess að KSM-66® geti stutt við streituþol, bætt svefn og stuðlað að andlegri og líkamlegri vellíðan.

Rauðrófuútdráttur (450 mg)

Rauðrófur bera náttúruleg nítröt sem hafa verið mikið rannsökuð í tengslum við blóðrás og súrefnisnýtingu við áreynslu. Engin örvandi efni.

Shilajit: 1 hylki, helst að morgni með máltíð.

Cordyceps: 1–2 hylki á dag með vatni, best að morgni.

KSM-66: 1 hylki á dag með máltíð. Áhrifin byggjast upp við reglulega notkun; flestar rannsóknir miða við átta til tólf vikna samfellda inntöku.

Rauðrófu extrakt: 1 hylki á dag, 60–90 mínútum fyrir æfingu ef nota skal samhliða hreyfingu.

• Sent með Íslandspósti eða Dropp.

• Pantanir eru sendar samdægurs eða næsta virka dag.

• Frí sending þegar verslað er fyrir yfir 15.000 kr.

• Sjá nánar um sendingar og skil hér.

Öruggir greiðslumöguleikar

    Greiddu með korti eða dreifðu greiðslum með Netgíró.

    18,960 kr 15,168 kr

    AFHVERJU INGLING

    Hvert innihaldsefni er valið með áherslu á gæði, uppruna og tilgang.

    Við leitumst við að nota hráefni sem styðja hvert annað og mynda heildstæða samsetningu, frekar en að velja sem flest innihaldsefni.

    Lífsþróttur er kjarninn í öllu sem við gerum.

    Markmið okkar er að þróa vörur sem styðja við daglega orku, jafnvægi og vellíðan svo þú getir notið hvers dags af meiri krafti.

    Við leggjum ríka áherslu á ábyrgt val á hráefnum, vandaðar samsetningar og framleiðslu samkvæmt ströngum gæðakröfum.

    Hver vara er þróuð með það að markmiði að sameina náttúru og þekkingu í lausnum sem þú getur treyst.

    Við trúum því að bestu lausnirnar verði til þegar náttúruleg hráefni og nútímaþekking vinna saman.

    Þess vegna byggjum við vörurnar okkar á vandlega völdum innihaldsefnum sem eru valin með bæði hefð og rannsóknir að leiðarljósi.

    ísland er hluti af sögu Ingling. Með framleiðslu hér heima getum við sameinað íslenskan uppruna, vandlega valin hráefni og ströng gæðaviðmið í vörum sem við erum stolt af að setja á markað.