Fjörugrös – Íslenskur Irish sea moss

(13)

Joð úr íslenskum fjörugrösum og klóþangi, villtum og tíndum við Íslandsstrendur.

  • Joð fyrir skjaldkirtilinn
  • Tveir íslenskir þörungar
  • Villt og tínt við Íslandsstrendur

• Þá sem vilja íslenskt sea moss, beint úr fjörunni
• Þá sem vilja hugsa vel um hár, húð og neglur innan frá
• Þá sem vilja steinefnaríkt hráefni úr hreinum, köldum sjó
• Þá sem borða lítið af fiski og vilja fá joð úr náttúrulegri uppsprettu

Ráðlagður neysluskammtur: 2 hylki að morgni.

Þörungar

Íslensk fjörugrös (Chondrus crispus, villt) 700 mg • Íslenskt klóþang (Ascophyllum nodosum) 500 mg

Steinefni

Joð (úr klóþangi) 431 µg

Önnur innihaldsefni

Hylki úr jurtabeðmi (HPMC).

Pakkning

60 hylki • 30 daga skammtur miðað við 2 hylki á dag.

Aðeins stærri útgáfan, Fjörugrös Stærri (180 hylki), inniheldur kalkþörung og gefur 135 mg af kalki í dagskammti.

Hvað eru fjörugrös?

Fjörugrös (Chondrus crispus) eru rauðþörungur sem vex við strendur Íslands og kallast á ensku sea moss eða Irish moss. Þau hafa verið nýtt á Íslandi frá landnámi.

Hvað er í Fjörugrösum frá Ingling?

Tveir íslenskir þörungar í hverju hylki: fjörugrös (Chondrus crispus) og klóþang (Ascophyllum nodosum). Dagskammtur (2 hylki) gefur 700 mg af fjörugrösum, 500 mg af klóþangi og 431 µg af joði. Aðeins stærri útgáfan, Fjörugrös Stærri, inniheldur líka kalkþörung og kalk.

Hvernig á að taka Fjörugrös?

2 hylki að morgni með vatni, helst með máltíð. Krukkan (60 hylki) dugar í 30 daga.

Hvar eru fjörugrösin tínd?

Við suðurströnd Íslands. Þau eru klippt, ekki rifin upp, svo þau vaxa aftur. Hafið við Ísland er meðal þeirra hreinustu í heimi.

Er þetta sama og sea moss?

Já, nákvæmlega sama þang. Munurinn er að sea moss á netinu kemur oftast frá heitum sjó í Asíu eða Karíbahafi, ræktað á reipum. Íslensk fjörugrös eru villt og úr köldum, hreinum sjó.

Hversu mikið joð má ég taka?

2 hylki gefa 431 µg af joði. Ekki fara yfir ráðlagðan dagskammt. Ef þú tekur aðrar vörur með joði (t.d. Kraft, Gyðju eða Klóþang, sink og selen) skaltu leggja joðmagnið saman og ráðfæra þig við lækni eða lyfjafræðing ef þú ert í vafa.

Má taka fjörugrös með skjaldkirtilssjúkdóm?

Ráðfærðu þig við lækni fyrst. Joð hefur áhrif á skjaldkirtilinn og getur skipt máli bæði við van- og ofvirkni.

Hverjir ættu ekki að taka Fjörugrös?

Þaðar konur og konur með barn á brjósti ættu að ráðfæra sig við lækni. Varan inniheldur hráefni úr sjó og getur innihaldið snefilmagn af fiski, krabbadýrum og skeldýrum.

Hvar eru Fjörugrös framleidd?

Í framleiðslu Ingling í Mosfellsbæ, úr þangi tíndu við Ísland.

Fjörugrös — írskur sjávarmosi (Chondrus crispus)

Fjörugrös eða írskur sjávarmosi, sem á ensku kallast Irish moss, vaxa við strendur Íslands, nánar tiltekið á suður- og suðvesturhluta landsins. Þau hafa verið nýtt til manneldis öldum saman og innihalda meðal annars prótín, A- og B1-vítamín, joð og steinefni á borð við kalín, magnesíum, járn og fosfór.

Sjávarmosinn okkar er villtur og tíndur við Íslandsstrendur, ólíkt meirihluta þess sjávarþangs sem er á markaði í dag. Um 97% af sjávargróðri heimsins er ræktaður og kemur stór hluti hans frá Suðaustur-Asíu.

Klóþang (Ascophyllum nodosum)

Klóþang er brúnþörungur sem vex í fjörum við Íslandsstrendur og er meðal joðríkustu hráefna sem finnast í náttúrunni. Það er ein elsta og þekktasta nytjaplanta Norður-Atlantshafsins og hefur verið nýtt í aldir, bæði til manneldis og sem fóður.

Joð (431 µg í dagskammti)

Joð stuðlar að eðlilegri starfsemi skjaldkirtils og framleiðslu skjaldkirtilshormóna. Joð stuðlar einnig að eðlilegri vitsmunastarfsemi, starfsemi taugakerfisins, eðlilegum orkuefnaskiptum, viðhaldi eðlilegrar húðar og eðlilegum vexti barna.

Aðeins stærri útgáfan, Fjörugrös Stærri (180 hylki), inniheldur kalkþörung og gefur 135 mg af kalki í dagskammti.

9.900 kr

Til á lager

Fljótleg og örugg afhending með Dropp og Póstinum.

Sent samdægurs á höfuðborgarsvæðinu ef pantað er fyrir kl. 12:00.

Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 15.000 kr.

Ráðlagður dagskammtur: 2 hylki að morgni.

Takið hylkin með vatni og helst með máltíð. Ekki skal fara yfir ráðlagðan dagskammt.

60 hylki • 30 daga skammtur

Ofnæmisvaldar

Varan inniheldur hráefni úr sjó og getur því innihaldið snefilmagn af fiski, krabbadýrum og skeldýrum.

Joð

Dagskammtur inniheldur 431 µg af joði. Ekki taka samhliða Klóþangi, sinki og seleni, því þá fer joð yfir efri öryggismörk (600 µg á dag).

Hverjir ættu að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk?

Leitið ráðgjafar hjá lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni fyrir notkun ef þið:

  • Eruð þunguð eða með barn á brjósti.
  • Takið lyf eða glímið við undirliggjandi sjúkdóm.
  • Eruð með ofnæmi fyrir einhverjum innihaldsefna vörunnar.

Leiðbeiningar um notkun og geymslu

Fylgið ráðlögðum dagskammti. Ekki skal fara yfir ráðlagðan dagskammt. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu eða heilbrigðs lífsstíls. Geymið á köldum og þurrum stað, fjarri beinu sólarljósi. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Afgreiðsla pantana
Pantanir sem berast fyrir kl. 12:00 á virkum dögum eru sendar samdægurs með Dropp eða Póstinum. Pantanir sem berast eftir hádegi eru að jafnaði sendar næsta virka dag.

Sendingarkostnaður
Frí sending á öllum pöntunum yfir 15.000 kr. Fyrir minni pantanir reiknast sendingarkostnaður í greiðsluferlinu.

Skil og endurgreiðslur
Óopnuðum vörum má skila innan 30 daga. Ef þú ert ekki ánægð(ur) með vöruna eða eitthvað kemur upp, hafðu samband og við finnum lausn saman.

Nánar: Sendingar og afhending · Skil og endurgreiðslur

Öruggir greiðslumöguleikar

    Greiddu með korti eða dreifðu greiðslum með Netgíró.

    9.900 kr

    Fæðubótarefni frá Ingling, framleidd í Mosfellsbæ

    AF HVERJU INGLING

    Hvert innihaldsefni er valið með áherslu á gæði, uppruna og tilgang.

    Við leitumst við að nota hráefni sem styðja hvert annað og mynda heildstæða samsetningu, frekar en að velja sem flest innihaldsefni.

    Lífsþróttur er kjarninn í öllu sem við gerum.

    Markmið okkar er að þróa vörur sem styðja við daglega orku, jafnvægi og vellíðan svo þú getir notið hvers dags af meiri krafti.

    Við leggjum ríka áherslu á ábyrgt val á hráefnum, vandaðar samsetningar og framleiðslu samkvæmt ströngum gæðakröfum.

    Hver vara er þróuð með það að markmiði að sameina náttúru og þekkingu í lausnum sem þú getur treyst.

    Við trúum því að bestu lausnirnar verði til þegar náttúruleg hráefni og nútímaþekking vinna saman.

    Þess vegna byggjum við vörurnar okkar á vandlega völdum innihaldsefnum sem eru valin með bæði hefð og rannsóknir að leiðarljósi.

    Ísland er hluti af sögu Ingling. Með framleiðslu hér heima getum við sameinað íslenskan uppruna, vandlega valin hráefni og ströng gæðaviðmið í vörum sem við erum stolt af að setja á markað.