6 vörur
Flokka eftir:
6 vörur
Þrjú íslensk hráefni úr hafinu, handtínt við Íslandsstrendur
Fjörugrös (Chondrus crispus) og Klóþang (Ascophyllum nodosum). Hráefnin eru ýmist handtínd eða unnin úr íslensku sjávarumhverfi sem er meðal þeirra hreinustu í heimi.
Fjörugrös — írskur sjávarmosi (Chondrus crispus) Fjörugrös, sem kallast á ensku Irish moss eða írskur sjávarmosi, vaxa við strendur sunnan og suðvestan Íslands. Fjörugrös hafa öldum saman verið nýtt til manneldis og ýmsar afurðir unnar úr þeim. Þau innihalda fjölda næringarefna, þar á meðal prótín, A- og B1-vítamín, joð og steinefni eins og kalín, magnesín, járn og fosfór.
Sjávarmosinn sem við notum er handtíndur við Íslandsstrendur, ólíkt meirihluta sjávarþangs á markaðnum í dag. Gögn sýna að um 97% af sjávargróðri heimsins kemur úr ræktun, margar slíkar staðsettar í Suðaustur-Asíu. Því er stór hluti „handtínds" sjávarþangs í raun ekki handtínt. Chondrus crispus má einnig rækta, en það hefur að mestu leyti ekki reynst arðbært, og því er nær öll Chondrus crispus á markaðnum handtínt í náttúrunni.
Klóþang (Ascophyllum nodosum) Klóþang er brúnþörungur sem vex í fjörum við Íslandsstrendur og er meðal þeirra náttúrulegu hráefna sem innihalda hvað mest joð. Klóþang er ein elsta og best þekkta nytjaplanta Norður-Atlantshafsins og hefur verið nýtt í aldir bæði til manneldis og dýrafóðurs.
Joð stuðlar að:
- eðlilegri starfsemi skjaldkirtils og eðlilegri framleiðslu skjaldkirtilshormóna
- eðlilegri vitsmunastarfsemi
- eðlilegum orkuefnaskiptum
- eðlilegri starfsemi taugakerfisins
- viðhaldi eðlilegrar húðar
- eðlilegum vexti barna
Kalk er nauðsynlegt fyrir viðhald eðlilegra beina og tanna. Kalk stuðlar einnig að:
- eðlilegri vöðvastarfsemi
- eðlilegri taugaboðmiðlun
- eðlilegri blóðstorknun
- eðlilegum orkuefnaskiptum
- eðlilegri starfsemi meltingarensíma
- frumuskiptingu og sérhæfingu frumna
Innihald: 90 hylki Ofnæmisvaldar: Hráefnin eru unnin úr sjó og gætu innihaldið snefil af fiski, krabba- og skelfiski.
Rauðrófuextrakt Inglings
450 mg af útdrætti úr rauðrófum. Með háum styrkleika færðu kjarnann úr rauðrófunni í hverjum skammti.
Rauðrófur innihalda náttúruleg nítröt, trefjar og litarefni af flavín gerð sem eru mikið rannsökuð í tengslum við líkamsstarfsemi og næringu. Rauðrófur eru hluti af fjölbreyttri og hollri fæðu og hafa verið notaðar í langan tíma sem hluti af íþróttafæði og daglegu mataræði fólks víða um heim.
Þessi vara inniheldur engin örvandi efni, eingöngu náttúrulegt extrakt úr rauðrófum.
Innihaldslýsing: Rauðrófur 450mg
Önnur innihaldsefni: Hylki úr jurtabeðmi
Nettóþyngd: 168 g
Villt aðalbláber í hylkjum – Náttúrulegt kraftaverk úr íslenskri náttúru
Upplifðu hreinan kraft náttúrunnar með villtum aðalbláberjum, vandlega týnd úr ósnortnum íslenskum víðernum. Hvert hylki inniheldur þéttan útdrátt úr þessum einstöku berjum, sem eru metin fyrir ferskleika, gæði og náttúrulega eiginleika.
Af hverju að velja villt aðalbláber?
- Náttúrulegt & hreinlegt: Öflugt úrval náttúrunnar án aukaefna.
- Skemmtilegt að taka inn: Hylkin eru auðveld í notkun og fullkomin fyrir daglegt líf.
- Hentar öllum: Einstakt fyrir þá sem vilja styðja við jafnvægi í lífsstíl sínum.
Valmöguleikar:
- 120 hylki: Fullkomið fyrir lengri notkun.
- 30 hylki: Tilvalið til að prófa eða taka með í ferðalög.
500mg í hverju hylki
Innihaldsefni:
Villt Íslensk Aðalbláber
Nettóþyngd: 240 g
D3 kemur kalkinu inn. K2 kemur því á réttan stað. Kalkið sjálft er úr íslenskum þörungi.
D-vítamín eitt og sér er hálf sagan. Það eykur upptöku kalks úr fæðu — en án K2 endar hluti af því kalki í æðaveggjum í stað beina. K2 (MK-7) virkjar próteinin sem stýra kalki í beinin og halda því frá æðunum. Þess vegna eru þau saman í hylkinu, með 150 mg af kalki úr Lithothamnion-kalkþörungi sem vex við Íslandsstrendur.
Hvað er í hylkinu?
- D3-vítamín – 50 mcg (2.000 IU): Tífalt viðmiðunargildi — skammturinn sem þarf til að halda D-vítamíni í blóði uppi yfir íslenskan vetur þar sem sólin gerir ekkert fyrir þig frá október fram í apríl.
- K2-vítamín (MK-7) – 100 mcg: MK-7 er langvirkasta form K2 — helmingunartími um þrír dagar, á móti klukkustundum fyrir MK-4. Eitt hylki á dag heldur stöðugri þéttni.
- Kalk – 150 mg og magnesíum – 10 mg úr Lithothamnion: Kalkþörungurinn ICECAL er unninn úr sjó við Ísland. Náttúrulegt steinefnaform með yfir 70 snefilefnum, ekki kalsíumkarbónat úr námu.
Fyrir hvern?
Alla sem búa á Íslandi október til apríl. Konur eftir fertugt. Þá sem æfa þungt og hlaða álagi á bein. Þá sem taka D-vítamín nú þegar en hafa aldrei parað það við K2.
Hvernig notarðu það?
Eitt hylki á dag með feitri máltíð — D3 og K2 eru bæði fituleysanleg og upptakan margfaldast með fitu. D-vítamín í blóði hækkar yfir 6–8 vikur.
Pakkning: 60 hylki • 60 daga skammtur • 1 hylki á dag
Innihald í hylki: Lithothamnion kalkþörungur 470 mg, D3-vítamín 50 mcg, K2-vítamín MK-7 100 mcg. Hylki úr jurtabeðmi. Engin hjálparefni.
Framleitt á Íslandi af Ingling ehf.
Þrjú efni sem skjaldkirtillinn þarf. Joðið kemur úr klóþangi sem vex við Íslandsstrendur.
Skjaldkirtillinn stýrir efnaskiptahraða, orku, hita og þyngd — og hann þarf þrjú hráefni til að framleiða hormónin sín: joð til að smíða þau, selen til að virkja þau og sink til að nema þau. Klóþang, sink og selen setur öll þrjú í eitt hylki, með joð úr íslensku klóþangi (Ascophyllum nodosum) í stað tilbúins joðs eingöngu.
Hvað er í hylkinu?
- Íslenskt klóþang – 414 mg, joð samtals 381 mcg: Handtínt við Ísland. Klóþang er ein joðríkasta plantan í heiminum og ber með sér snefilefni sem hreint kalíumjoðíð gerir ekki.
- Sink (bisglýsínat) – 12 mg: 120% af viðmiðunargildi. Fyrir ónæmiskerfið, húð, hár og skjaldkirtilsnæmi — í forminu sem frásogast best.
- Selen (selen-auðgað ger) – 100 mcg: Lífrænt selen úr geri, ekki natríumselenít. Selen er nauðsynlegt til að breyta T4 í virka T3-hormónið.
Fyrir hvern?
Þá sem finna fyrir þreytu, kulda og hægum efnaskiptum. Þá sem borða lítið af fiski og mjólkurvörum — helstu joðgjöfum Íslendinga. Fólk sem vill íslenskt hráefni í bætiefnin sín.
Hvernig notarðu það?
Eitt hylki á dag með mat. Skjaldkirtillinn vinnur hægt; gefðu 6–8 vikur.
Pakkning: 90 hylki • 90 daga skammtur • 1 hylki á dag
Innihald í hylki: Íslenskt klóþang 414 mg, sink bisglýsínat 40 mg, selen-auðgað ger 46 mg, kalíumjoðíð. Hylki úr jurtabeðmi. Engin hjálparefni.
Framleitt á Íslandi af Ingling ehf.
FYRSTA ÍSLENSKA PRE-WORKOUT'IÐ
Jarðarberjabragð og íslenskt sjávarsalt frá Saltverki, 460 mg í hverjum skammti.
Þegar þú svitnar tapar þú salti. Hver skeið ber 460 mg af sjávarflögusalti frá Saltverki og kalíumsítrat með steinefnunum sem fara á æfingunni eru komin í blönduna sjálfa.
Ráðlagður skammtur: 1 mæliskeið (~14,3 g)
Virk innihaldsefni í skammti:
L-Citrulline 2.000 mg • Beta-Alanine 1.000 mg • Taurine 1.000 mg • DL-Malic Acid 1.000 mg • Beetroot Extract 10:1 500 mg • Sjávarflögusalt frá Saltverki 460 mg • L-Tyrosine 420 mg • Cordyceps sinensis Extract 333 mg • L-Theanine 267 mg • Potassium Citrate 150 mg • Rhodiola rosea Extract 100 mg • Koffín 100 mg
Innihald:
Dextrose, Strawberry Flavoring, L-Citrulline, Citric Acid (E330), Beta-Alanine, Taurine, DL-Malic Acid (E296), Beetroot Extract 10:1, Sjávarflögusalt frá Saltverk, L-Tyrosine, Cordyceps sinensis Extract, L-Theanine, Potassium Citrate (E332), Rhodiola rosea Extract, Caffeine Anhydrous.
Pakkning
428 g • 30 skammtar • um 297 kr. á æfingu

