Skýr Fókus

(1)

Fókus sem endist út daginn.

  • Fókus og andleg skerpa
  • Minni og hugrænt úthald
  • Ró undir álagi
  • Blóðflæði til heilans

9,900 kr

Til á lager

Pakkning: 180 hylki

Fljótleg og örugg afhending með Dropp og Póstinum.

Sent samdægurs á höfuðborgarsvæðinu ef pantað er fyrir kl. 12:00.

Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 15.000 kr.

Ráðlagður dagskammtur: 6 hylki

Virk innihaldsefni

Citicoline 500 mg

L-tyrosine 420 mg

Panax ginseng 800 mg

Rhodiola Rosea 300 mg

Bacopa monnieri 300 mg

Lion’s Mane (Hericium erinaceus) 100 mg

Ginkgo biloba 120 mg

Pine bark extract 150 mg

Íslensk fjallagrös 80 mg

Astaxanthin 4 mg

Pakkning

180 hylki • 30 daga skammtur • Nettóþyngd 277 g

Ofnæmisvaldar

Varan inniheldur enga þekkta ofnæmisvalda.

Hverjir ættu að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk?

Leitið ráðgjafar hjá lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni fyrir notkun ef þið:

  • Eruð þunguð eða með barn á brjósti.
  • Takið lyf eða glímið við undirliggjandi sjúkdóm.
  • Eruð með ofnæmi fyrir einhverjum innihaldsefna vörunnar.

Leiðbeiningar um notkun og geymslu

Fylgið ráðlögðum dagskammti. Ekki skal fara yfir ráðlagðan dagskammt. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu eða heilbrigðs lífsstíls. Geymið á köldum og þurrum stað, fjarri beinu sólarljósi. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Skýr Fókus er hannaður til að styðja við einbeitingu og andlega skerpu yfir daginn. Hráefnin vinna saman á fjórum sviðum: boðefni og frumubygging, aðlögun að álagi, blóðflæði til heilans og vörn gegn oxunarálagi.

Citicoline

Citicoline er forveri phosphatidylcholine og acetylcholine og tengist þannig bæði uppbyggingu frumuhimna og boðefnakerfum heilans. Rannsóknir benda til þess að citicoline geti stutt við minni, athygli og einbeitingu.

L-tyrosine

L-tyrosine er amínósýra sem líkaminn notar við myndun catecholamine-boðefna. Rannsóknir benda til þess að L-tyrosine geti stutt við hugræna frammistöðu þegar álag, þreyta eða svefnskortur er til staðar.

Panax ginseng

Panax ginseng er eitt þrautrannsakaðasta adaptógen sem til er og hefur verið notað hefðbundnum austurlenskum jurtalækningum um aldir. Rannsóknir benda til þess að ginseng geti stutt við andlega frammistöðu, árvekni og orku.

Rhodiola Rosea

Rhodiola Rosea vex á norðurslóðum og hefur verið notuð til að takast á við langvarandi álag. Rannsóknir benda til þess að Rhodiola geti dregið úr þreytu, stutt við streituþol og bætt einbeitingu þegar mest reynir á.

Bacopa monnieri

Bacopa monnieri er þekkt jurt sem á sér langa sögu í ayurvedískri jurtanotkun. Rannsóknir benda til þess að bacopa geti stutt við minni, námsgetu og hugræna frammistöðu við reglulega notkun yfir lengri tíma.

Lion’s Mane (Hericium erinaceus)

Lion’s Mane hefur verið rannsakaður fyrir áhrif sín á taugakerfið, meðal annars í tengslum við nerve growth factor (NGF) og taugasveigjanleika. Rannsóknir benda til þess að Lion’s Mane geti stutt við minni, einbeitingu og eðlilega starfsemi taugakerfisins.

Ginkgo biloba

Ginkgo biloba er ein mest rannsakaða jurt heims þegar kemur að blóðrás. Rannsóknir benda til þess að ginkgo geti stutt við blóðflæði og þar með flutning súrefnis og næringar til vefja, þar á meðal heilavefs.

Pine bark extract

Pine bark extract er ríkt af OPC-fjölfenólum. Rannsóknir benda til þess að það geti stutt við starfsemi æða og blóðflæði, auk þess að vernda frumur gegn oxunarálagi.

Íslensk fjallagrös

Fjallagrös (Cetraria islandica) hafa verið tínd og nýtt á Íslandi frá landnámi. Þau bera lífvirk plöntuefni og hafa verið rannsökuð í tengslum við oxunarjafnvægi og vörn frumna.

Astaxanthin

Astaxanthin er meðal öflugustu andoxunarefna sem þekkjast og skilar sér inn í frumuhimnur. Rannsóknir benda til þess að astaxanthin geti verndað frumur gegn oxunarálagi og stutt við bata eftir álag.

Takið 6 hylki að morgni eða fyrri hluta dags, helst með máltíð sem inniheldur fitu og prótein til að stuðla að betra frásogi. Hluti hráefnanna — bacopa, rhodiola og Lion’s Mane — byggist upp við reglulega notkun, svo dagleg inntaka skilar bestum árangri.

• Sent með Íslandspósti eða Dropp.

• Pantanir eru sendar samdægurs eða næsta virka dag.

• Frí sending þegar verslað er fyrir yfir 15.000 kr.

• Sjá nánar um sendingar og skil hér.

Öruggir greiðslumöguleikar

    Greiddu með korti eða dreifðu greiðslum með Netgíró.

    Skýr Fókus

    9,900 kr

    9,900 kr

    AFHVERJU INGLING

    Hvert innihaldsefni er valið með áherslu á gæði, uppruna og tilgang.

    Við leitumst við að nota hráefni sem styðja hvert annað og mynda heildstæða samsetningu, frekar en að velja sem flest innihaldsefni.

    Lífsþróttur er kjarninn í öllu sem við gerum.

    Markmið okkar er að þróa vörur sem styðja við daglega orku, jafnvægi og vellíðan svo þú getir notið hvers dags af meiri krafti.

    Við leggjum ríka áherslu á ábyrgt val á hráefnum, vandaðar samsetningar og framleiðslu samkvæmt ströngum gæðakröfum.

    Hver vara er þróuð með það að markmiði að sameina náttúru og þekkingu í lausnum sem þú getur treyst.

    Við trúum því að bestu lausnirnar verði til þegar náttúruleg hráefni og nútímaþekking vinna saman.

    Þess vegna byggjum við vörurnar okkar á vandlega völdum innihaldsefnum sem eru valin með bæði hefð og rannsóknir að leiðarljósi.

    ísland er hluti af sögu Ingling. Með framleiðslu hér heima getum við sameinað íslenskan uppruna, vandlega valin hráefni og ströng gæðaviðmið í vörum sem við erum stolt af að setja á markað.