Framleiðir sitt eigið fæðubótarefni
Mosfellingur fjallaði um Ingling í janúar 2024, á fyrsta ári fyrirtækisins.
Vörurnar í greininni: Kraftur · KSM-66 Ashwagandha
Byrjaði á eigin þörf
Daníel Ingi Garðarsson, ungur frumkvöðull úr Mosfellsbæ, hóf framleiðslu á fæðubótarefnum árið 2023. Hormónamæling sýndi lágt testósterón. Hann fann ekki test booster á Íslandi sem honum þótti nógu góður og ákvað því að búa hann til sjálfur.
Í viðtalinu bendir hann á að lágt testósterón og frjósemisvandi hjá ungum karlmönnum sé vaxandi vandamál á Vesturlöndum.
Nafnið kemur úr Ynglinga sögu
Ingling heitir eftir Ynglinga sögu, einni af uppáhaldssögum Daníels, sem segir frá afkomendum Freys, guðs frjóseminnar. Merkið er Ynglingarúnin og millinafn Daníels er Ingi.
Framleitt á Íslandi
Þegar greinin birtist voru vörurnar sex og allar framleiddar á Íslandi. Daníel flytur hráefnin inn sjálfur og nefnir ashwagandha sérstaklega, jurt sem hann segir styðja við hormónajafnvægi og hjálpa við streitu og álag.
Síðan þá hefur Ingling flutt í eigin framleiðsluaðstöðu og vöruúrvalið stækkað.
Kynntu þér Kraft · Allar vörur Ingling
Lestu upprunalegu greinina á mosfellingur.is (31. janúar 2024)
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreytts mataræðis og heilbrigðs lífsstíls. Lesið ávallt innihaldslýsingu og ráðlagða notkun vörunnar.
Deila á

