Fjörugrös og þang í fjöruborðinu við Íslandsstrendur

Fjörugrös (írskur sjávarmosi) og klóþang – íslensk hráefni úr hafinu

Fjörugrös (írskur sjávarmosi) og klóþang – íslensk hráefni úr hafinu

Fjörugrös (Chondrus crispus), einnig þekkt sem írskur sjávarmosi (e. Irish Sea Moss), er rauðþörungur sem vex í köldum sjó Norður-Atlantshafsins, meðal annars við strendur Íslands. Fjörugrös eiga sér langa sögu sem fæða fyrir okkur Íslendinga og hafa á síðustu árum vakið aukna athygli vegna fjölbreyttrar næringarsamsetningar.

Vörurnar í greininni: Fjörugrös og klóþang · Gyðja

Næringarefni og steinefni

Fjörugrös eru náttúrulega rík af ýmsum steinefnum. Í rannsókn þar sem næringarsamsetning þriggja tegunda sjávarþörunga var borin saman reyndust fjörugrös (Chondrus crispus) ríkust af kalki, járni, mangan og sinki. Þau reyndust jafnframt rík af bæði lífsnauðsynlegum og öðrum amínósýrum, meðal annars alaníni, glútamínsýru og glýsíni.

Sameining tveggja íslenskra sjávarþörunga

Hjá Ingling sameinum við fjörugrösin með íslensku klóþangi (Ascophyllum nodosum) úr Breiðafirði. Klóþang er náttúrulega ríkt af joði, mikilvægu snefilefni sem stuðlar að eðlilegri starfsemi skjaldkirtils, eðlilegri framleiðslu skjaldkirtilshormóna og eðlilegum orkuefnaskiptum.

Með því að blanda saman fjörugrösum og klóþangi sameinum við tvö næringarrík sjávarhráefni með ólíka og fjölbreytta náttúrulega samsetningu.

Uppruni og gæði hráefnanna

Uppruni hráefnanna skiptir okkur miklu máli. Klóþangið sem við notum kemur úr Breiðafirði og fjörugrösin eru tínd villt við Íslandsstrendur. Þau eru klippt, ekki rifin upp, svo þau vaxi aftur. Við höfum jafnframt sent hráefnið í greiningu til að fá betri yfirsýn yfir innihald þess og gæði. Fyrir okkur skiptir máli að vita hvaðan hráefnið kemur, hvað það inniheldur og hvernig það er meðhöndlað.

Fjörugrös og klóþang í okkar vörum

Fjörugrös og klóþang er að finna í vörum frá Ingling, meðal annars í Gyðju – Lífskrafti, þar sem þessi íslensku sjávarhráefni eru hluti af stærri og markvissri formúlu. Fyrir þá sem vilja fjörugrös og klóþang sérstaklega bjóðum við blönduna einnig sem sérstaka vöru.

Fyrir okkur snýst þetta um að nýta það sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða og sameina uppruna, gæði og þekkingu á hráefnunum í vörum sem eru framleiddar hér á Íslandi.

Tvær tegundir íslenskra sjávarþörunga – sameinaðar í einni markvissri blöndu.

Heimild

¹ Čmiková, N. o.fl. (2024). Seaweed Nutritional Value and Bioactive Properties: Insights from Ascophyllum nodosum, Palmaria palmata, and Chondrus crispus. Life, 14(11), 1522. PMID: 39598320.
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/39598320/