Djúpur svefn frá Ingling undir norðurljósum

Ferðalagið að dýpri svefn

Alveg síðan ég man eftir mér átti ég erfitt með svefn. Vaknaði alltaf hálfdauður, alls ekki tilbúinn í daginn, langaði bara í meiri svefn. Dýpri svefn, kannski?

Vörurnar í greininni: Djúpur svefn · Kraftur · KSM-66 Ashwagandha

Eftir að Kraftur varð tilbúinn fannst mér ég vera búinn að gera allt sem ég gat til að auka orku, en svefninn var enn vandi. Nú yfirfylltur af Krafti beindi ég sjónum mínum að svefninum (bara ekki á morgnana). Hvernig tækla ég þetta vandamál?

Endurheimt og mikilvægi svefns

Líf á jörðu þróaðist með svefn sem lífsnauðsynlega þörf. Endurheimtin sem við fáum í svefni er orkukrefjandi, en orkugefandi um leið.

Hvernig hefur þessi vandi verið leystur með náttúrulegum aðferðum í gegnum tíðina? Jú, með rútínu: að skapa sem bestu aðstæður fyrir svefninn. En hvað gerist inni í líkamanum? Taugarnar róast, líkamshitinn lækkar og ljósin slökkva.

Odyssey eftir Hómer kemur mér í hug og gerði það oft í þróun Djúps svefns. Hlustaði mikið á Ódysseifskviðu í framleiðslunni, þessa lengri daga sem maður var að hylkja og blanda með jurtalyktina fasta í nös. Myndin sem birtist sterkust í huga er þegar gyðjan Aþena svæfir Odysseus (nokkrum sinnum). Leyfir hinum ljúfa svefn að taka hann yfir, oft í hans mestu þörf; Aþena gerir það til að vernda, hvíla og veita Odysseus það öryggi sem hann þarfnast til að sofna og klára leiðangurinn heim.

Vinnan

Fyrst var horft á hvernig svefn virkar, lífeðlisfræðilega. Svo á gömlu jurtahefðirnar (jurtalæknisfræði), með rannsóknum til hliðsjónar, til að kortleggja kerfið fyrir formúluna, hvernig hún myndi virka og hvernig hún á að virka.

Síðan fór söfnunin fram. Hráefni eru ekki bara hráefni; við þurfum hráefni í hæstu gæðum til að fullkomna blönduna, og það tók tíma. Einn stærsti vandinn var að gera formúluna eins góða og hún getur orðið í aðeins 6 hylkjum. Margir kvarta undan hylkjafjöldanum, en mín megin er helsta takmörkunin að viðhalda virkni á svona flókinni formúlu með aðeins 6 hylkjum u.þ.b. 3 g.

Með miklu púsli náðum við að setja allt saman í fullkomnum hlutföllum, miðað við virku efnin í hráefnunum og Djúpur svefn fæddist.

Hráefni

Snilldin í formúlunni liggur í gæðahráefnum hennar, saman ráðast þau á svefninn í fimm samhliða þáttum. GABA, kjarnhiti, kortisól, dægursveifla og endurheimt.

Sum efnin róa heilann beint með því að styrkja GABA (gera slakandi lyf ekki hið sama?), bremsukerfi taugakerfisins eins og Valerian, Passionflower, L-theanine og Magnesíum.

Glýsín og íslenska kollagenið unnið úr þorski lækka kjarnhita líkamans sem er náttúrulega merkið sem segir líkamanum „Jæja núna ferðu í háttinn“. Er ekki mun auðveldara að sofna þegar manni er kalt og rennur sér undir sæng? Saman taka þessi tvö kerfi á bæði „Ég get ekki slakað á“ og „Ég kemst ekki niður í djúpan svefn“.

Sterkustu sönnunargögnin liggja hjá sex hráefnum sem staðist hafa margar mannrannsóknir: KSM-66 Ashwagandha, Saffran, Passionflower, Melatónín, Glýsín og L-theanine. KSM-66 Ashwagandha sker sig sérstaklega út með glæsilegum árangri í rannsóknum um svefn og endurheimt.

Skoða Djúpan svefn