KSM-66 Ashwagandha er eitt af sterkustu afbrigðum Ashwagandha, með að minnsta kosti 5% hlutfall af Withanolides.
Ashwagandha er vel metinn af mörgum, frá íþróttamönnum til einstaklinga í breytingaskeiðum í lífinu.
Margir sem bæta Ashwagandha við daglegu rútínuna sína hafa sagt að þeir hafa upplifað:
Fundið fyrir auknari orku og lífsfögnuð.
Meiri skírleika
Róandi tilfinningu og meira jafnvægi í daglegu lífi
Upplyftingu á almennu skapi og lífsorku.
Fyrir þá sem hafa áhuga á vísindum bakvið KSM-66 Ashwagandha, þá hafa fjölbreyttar rannsóknir skoðað mögulegan ávinning þess. Þú getur kynnt þér þessar niðurstöður á [https://ksm66ashwagandhaa.com/clinical-studies/].
Mundu, reynsla hvers einstaklings með Ashwagandha getur verið mismunandi. Þetta er ekki læknisfræðileg lausn, heldur náttúrulegt bótarefni sem margir velja vegna þess hvernig það gæti hresst daglegt líf þeirra.
Shilajit hylki – náttúrulegur stuðningur fyrir orku og úthald
Shilajit er náttúrulegt efni sem myndast yfir aldir í fjalllendum svæðum og inniheldur 84 steinefni af þeim 102 sem mannslíkaminn þarf og mikið magn af fulvic sýru.
Shilajit er vel metið af mörgum, allt frá íþróttafólki til þeirra sem vilja efla almenna vellíðan og úthald.
Samkvæmt rannsóknum hefur shilajit verið tengt við:
✔ Aukna orku og lífsþrótt ✔ Stuðning við úthald og jafnvægi í daglegu lífi ✔ Meiri skerpu og einbeitingu ✔ Endurnærandi áhrif á líkamann eftir álag ✔ Stuðning við eðlilega starfsemi efnaskipta ✔ Betri upptöku steinefna
Fyrir þá sem hafa áhuga á vísindunum á bak við shilajit, hafa fjölbreyttar rannsóknir skoðað efnasamsetningu þess og mögulegan ávinning og er vitnað til margra hér fyrir neðan: (https://www.jptcp.com/index.php/jptcp/article/view/6677)
Shilajit Ísland
Ashwagandha Ísland Þessi vara er ekki ætluð til að greina, meðhöndla, lækna eða fyrirbyggja neina sjúkdóma Innihaldslýsing:
KSM-66: 90 hylki • 90 daga skammtur • Nettóþyngd 100 g
Shilajit: 60 hylki • 60 daga skammtur • Nettóþyngd 80 g
KSM-66® Ashwagandha extrakt (400 mg)
KSM-66® er mest rannsakaða staðlaða form ashwagandha (Withania somnifera) sem völ er á og er staðlað í minnst 5% withanolíð — virku efnin sem rannsóknirnar snúast um. Rannsóknir benda til þess að KSM-66® geti stutt við streituþol, bætt svefn og stuðlað að andlegri og líkamlegri vellíðan.
Shilajit (500 mg)
Shilajit er náttúrulegt efni sem myndast á löngum tíma við hægt niðurbrot plöntuefna í fjalllendi. Efnið ber fulvic sýru og fjölbreytt snefilefni — talað er um 84 steinefni af þeim rúmlega 100 sem líkaminn nýtir. Rannsóknir benda til þess að shilajit geti stutt við orkuframleiðslu frumna, úthald og upptöku annarra næringarefna.
879200
1099000
10,990 kr8,792 kr
Til á lager
Fljótleg og örugg afhending með Dropp og Póstinum.
Sent samdægurs á höfuðborgarsvæðinu ef pantað er fyrir kl. 12:00.
Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 15.000 kr.
KSM-66: 1 hylki á dag með máltíð. Áhrifin byggjast upp við reglulega notkun; flestar rannsóknir miða við átta til tólf vikna samfellda inntöku.
Shilajit: 1 hylki, helst að morgni með máltíð.
Ofnæmisvaldar
KSM-66 Ashwagandha inniheldur MJÓLK. Shilajit inniheldur enga þekkta ofnæmisvalda.
Sérstök varúð
Ekki er mælt með shilajit fyrir þá sem eru með sigðfrumublóðleysi, blóðkrómatósu eða thalassemiu.
Hverjir ættu að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk?
Leitið ráðgjafar hjá lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni fyrir notkun ef þið:
Eruð þunguð eða með barn á brjósti.
Takið lyf eða glímið við undirliggjandi sjúkdóm.
Eruð með ofnæmi fyrir einhverjum innihaldsefna vörunnar.
Leiðbeiningar um notkun og geymslu
Fylgið ráðlögðum dagskammti. Ekki skal fara yfir ráðlagðan dagskammt. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu eða heilbrigðs lífsstíls. Geymið á köldum og þurrum stað, fjarri beinu sólarljósi. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Afgreiðsla pantana Pantanir sem berast fyrir kl. 12:00 á virkum dögum eru sendar samdægurs með Dropp eða Póstinum. Pantanir sem berast eftir hádegi eru að jafnaði sendar næsta virka dag.
Sendingarkostnaður Frí sending á öllum pöntunum yfir 15.000 kr. Fyrir minni pantanir reiknast sendingarkostnaður í greiðsluferlinu.
Skil og endurgreiðslur Óopnuðum vörum má skila innan 30 daga. Ef þú ert ekki ánægð(ur) með vöruna eða eitthvað kemur upp, hafðu samband og við finnum lausn saman.
Hef verið að taka Ashwaganda á kvöldin síðustu mánuði. Frábær vara! Svefninn er miklu betri að öllu leyti, er alveg hætt að vakna mörgum sinnum yfir nóttina.
Ég hef tekið eftir auknu jafnvægi yfir daginn; hausinn er ekki jafn lengi í gang á morgnanna og ekki jafn lengi að lognast út á kvöldin. Samhliða því hafa "taugakerfis-hrun" sem maður upplifði nánast daglega heyrt sögunni til.
Ég hef alltaf verið MIKILL efasemdamaður þegar komið hefur að bætiefna-bransanum yfir höfuð og ekki haft neina trú á honum. En þið hafið svo sannarlega snúið mér með ykkar vörum! Svo skemmir ekki hversu mikið gegnsæi er gagnvart innihaldi, framleiðsluferli osf., það er greinilegt að menn hafa "lesið heimavinnuna" því þið "ásið" þessa línu og hugmyndafræðina á bakvið heilbrigða skynsemi; frá fæðingu hugmyndar, til framkvæmdar og allt til uppskeru - og aldrei fallið í "gryfjuna" gegnum allt prósessið.
Get ekki dottið einn einasti neikvæði hlutur í hug hvað varðar mína reynslu á viðskiptum við ykkur og þær vörur sem ég hef keypt. En svo ég "jinx-i" það ekki (því jafnvægið er jú það mikilvægasta í þessu öllu saman) þá segi ég bara þetta:
"Það má alltaf blómum á sig bæta, svo í gvuðannan bænum - ekki hætta!"
Takk fyrir mig!
---
Jón Ingvar Marroquin Hjaltason
e.þ.s.
"Rolling" John McAnger
Great product I have been taking it for a year and the difference I feel with more energy and being more focus i would highly recommend anyone to try it.
Hvert innihaldsefni er valið með áherslu á gæði, uppruna og tilgang.
Við leitumst við að nota hráefni sem styðja hvert annað og mynda heildstæða samsetningu, frekar en að velja sem flest innihaldsefni.
Lífsþróttur er kjarninn í öllu sem við gerum.
Markmið okkar er að þróa vörur sem styðja við daglega orku, jafnvægi og vellíðan svo þú getir notið hvers dags af meiri krafti.
Við leggjum ríka áherslu á ábyrgt val á hráefnum, vandaðar samsetningar og framleiðslu samkvæmt ströngum gæðakröfum.
Hver vara er þróuð með það að markmiði að sameina náttúru og þekkingu í lausnum sem þú getur treyst.
Við trúum því að bestu lausnirnar verði til þegar náttúruleg hráefni og nútímaþekking vinna saman.
Þess vegna byggjum við vörurnar okkar á vandlega völdum innihaldsefnum sem eru valin með bæði hefð og rannsóknir að leiðarljósi.
ísland er hluti af sögu Ingling. Með framleiðslu hér heima getum við sameinað íslenskan uppruna, vandlega valin hráefni og ströng gæðaviðmið í vörum sem við erum stolt af að setja á markað.