KSM-66 Ashwagandha

(109)

Þrautrannsakaðasta form ashwagandha, staðlað í minnst 5% withanolíð.

  • Streituþol og ró
  • Betri svefn
  • Orka og skerpa
  • KSM-66® staðlað extrakt

• Þá sem búa við mikið álag og vilja styðja við ró og jafnvægi
• Þá sem vilja minnka kortisól (streituhormónið)
• Þá sem vilja sofa betur og hugsa skýrar

Ráðlagður dagskammtur: 1 hylki

Virk innihaldsefni

KSM-66® Ashwagandha extrakt 400 mg í hylki

Önnur innihaldsefni

Hylki úr jurtabeðmi (HPMC)

Pakkning

90 hylki • 90 daga skammtur • Nettóþyngd 100 g

Hvað er KSM-66 ashwagandha?

KSM-66® er staðlaður útdráttur úr ashwagandha-rót (Withania somnifera) með að minnsta kosti 5% withanolides. Það er það form ashwagandha sem flestar klínískar rannsóknir hafa verið gerðar á.

Hvað er í KSM-66 Ashwagandha frá Ingling?

400 mg af KSM-66® ashwagandha-útdrætti í hverju hylki. Hylkið er úr jurtabeðmi (HPMC). Inniheldur mjólk. 90 hylki, 90 daga skammtur.

Hvernig á að taka ashwagandha?

1 hylki á dag með máltíð. Fyrir svefn tekur fólk gjarnan hylkið að kvöldi, fyrir streitu og einbeitingu að morgni. Áhrifin byggjast upp við reglulega notkun; rannsóknir miða við 8–12 vikna samfellda inntöku.

Við hverju hjálpar ashwagandha?

Rannsóknir á KSM-66® benda til þess að það geti stutt við streituþol, lækkað kortisól, bætt svefn og stutt við andlegt og líkamlegt jafnvægi. Það er adaptógen – jurt sem hjálpar líkamanum að laga sig að álagi.

Hækkar ashwagandha testósterón?

Ekki beint. Það lækkar kortisól, sem vinnur gegn testósteróni, og rannsóknir á körlum undir álagi hafa mælt hækkun samhliða. Fyrir beinan stuðning við testósterón er Kraftur samsettur sérstaklega.

Er KSM-66 Ashwagandha vegan?

Þessi útgáfa inniheldur mjólk. KSM-66 VEGAN er til í sérstakri útgáfu án mjólkur.

Má taka ashwagandha með Krafti eða Gyðju?

Kraftur og Gyðja innihalda nú þegar KSM-66® ashwagandha (250 mg og 200 mg), svo yfirleitt er ekki þörf á að bæta við. Djúpur svefn inniheldur 80 mg.

Hverjir ættu ekki að taka ashwagandha?

Ráðfærið ykkur við lækni ef þið eruð þunguð, með barn á brjósti, með skjaldkirtilssjúkdóm, takið róandi lyf eða eruð með sjálfsofnæmissjúkdóm.

Hvar er KSM-66 Ashwagandha framleitt?

Í framleiðslu Ingling í Mosfellsbæ.

KSM-66® Ashwagandha extrakt (400 mg)

KSM-66® er mest rannsakaða staðlaða form ashwagandha (Withania somnifera) sem völ er á og er staðlað í minnst 5% withanolíð — virku efnin sem rannsóknirnar snúast um. Rannsóknir benda til þess að KSM-66® geti stutt við streituþol, bætt svefn og stuðlað að andlegri og líkamlegri vellíðan.

Rótin ein er notuð, ekki blöð og útdrátturinn er unninn án alkóhóls eða annarra leysiefna. Það er ástæðan fyrir því að KSM-66® er dýrara hráefni en almennt ashwagandha-duft — og ástæðan fyrir því að við notum það.

4,990 kr 3,992 kr

Til á lager

Fljótleg og örugg afhending með Dropp og Póstinum.

Sent samdægurs á höfuðborgarsvæðinu ef pantað er fyrir kl. 12:00.

Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 15.000 kr.

Takið 1 hylki á dag með máltíð. Áhrifin byggjast upp við reglulega notkun; flestar rannsóknir miða við átta til tólf vikna samfellda inntöku.

Ofnæmisvaldar

Inniheldur MJÓLK.

Hverjir ættu að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk?

Leitið ráðgjafar hjá lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni fyrir notkun ef þið:

  • Eruð þunguð eða með barn á brjósti.
  • Takið lyf eða glímið við undirliggjandi sjúkdóm.
  • Eruð með ofnæmi fyrir einhverjum innihaldsefna vörunnar.

Leiðbeiningar um notkun og geymslu

Fylgið ráðlögðum dagskammti. Ekki skal fara yfir ráðlagðan dagskammt. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu eða heilbrigðs lífsstíls. Geymið á köldum og þurrum stað, fjarri beinu sólarljósi. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Afgreiðsla pantana
Pantanir sem berast fyrir kl. 12:00 á virkum dögum eru sendar samdægurs með Dropp eða Póstinum. Pantanir sem berast eftir hádegi eru að jafnaði sendar næsta virka dag.

Sendingarkostnaður
Frí sending á öllum pöntunum yfir 15.000 kr. Fyrir minni pantanir reiknast sendingarkostnaður í greiðsluferlinu.

Skil og endurgreiðslur
Óopnuðum vörum má skila innan 30 daga. Ef þú ert ekki ánægð(ur) með vöruna eða eitthvað kemur upp, hafðu samband og við finnum lausn saman.

Nánar: Sendingar og afhending · Skil og endurgreiðslur

Öruggir greiðslumöguleikar

    Greiddu með korti eða dreifðu greiðslum með Netgíró.

    4,990 kr 3,992 kr

    Customer Reviews

    Overall rating: 4.6 / 5 from 109 reviews.

    Hef verið að taka Ashwaganda á kvöldin síðustu mánuði. Frábær vara! Svefninn er miklu betri að öllu leyti, er alveg hætt að vakna mörgum sinnum yfir nóttina.

    KSM-66 Ashwaganda

    Customer photo review of KSM-66 Ashwaganda

    Very happy with it...I recommend it 😃

    KSM-66 Ashwaganda

    ´ahrifin mættu vera sterkari en þau eru í raun. bkv.

    KSM-66 Ashwaganda

    Algjörlega magnaðar vörur, finn mikin mun á mér þegar eg tek ekki Ashwaganda frá IngLing

    KSM-66 Ashwaganda

    Amazing product...I recommend

    KSM-66 Ashwaganda

    Hefur róandi áhrif og mér finnst ég sofa mun betur😊

    KSM-66 Ashwaganda

    This is a great product. I recommend it to anyone 😊

    KSM-66 Ashwaganda

    Meiri orka yfir daginn, betri svefngæði

    KSM-66 Ashwaganda

    Feel no difference yet .......

    KSM-66 Ashwaganda

    Gæti tekið einhvern tíma til að virka

    KSM-66 Ashwaganda

    Fann mikinn mun strax og sef svo miklu betur get svo sannarlega mælt með þessari vöru og ætla að halda áfram að nota . Takk fyrir mig .

    KSM-66 Ashwaganda

    I didnt get my order

    KSM-66 Ashwaganda

    Store owner replied: Biðjumst innilegar afsökunar á því, endurgreiddum þér eftir að við töluðum í síma. Vinsamlegast láttu vita ef endurgreiðslan fór ekki í gegn

    I just started using this product, still no experience.

    KSM-66 Ashwaganda

    Fljótt að koma og fljótt að virka

    KSM-66 Ashwaganda

    Kviðin búin að minka töluvert, ég get sofið á nóttinni,Súper næs! Mæli sjúklega með!

    KSM-66 Ashwaganda

    Hef verið að taka ashwaganda í 2 mánuði sirka núna og er næstum búin að klára flöskunna, þetta er búið að styrkja mig líkamlega og sérstaklega andlega1 Er réttsvo að stressa lengur og hef sjaldan verið sterkari.

    KSM-66 Ashwaganda

    Þassi vara er eins og fjárfesting þar sem ávöxtunin virðist kannski ekki mikil en með tímanum margfaldast hún og kemur í ljós að þetta er algjör MUST HAVE. Ég gæti ekki mæld meira með. Endilega prófa

    KSM-66 Ashwaganda

    Þessi vara hefur hjalpað mer að ná markmiðum minum i ræktinni hraðar og hef fundið fyrir meiri stöðuleika í bæði andlegu og daglegu lífi. Mæli með 😃

    KSM-66 Ashwaganda

    hefur gert mig mun betri í skapinu og betri árangur í ræktinni!

    KSM-66 Ashwaganda

    Fæðubótarefni frá Ingling, framleidd í Mosfellsbæ

    AFHVERJU INGLING

    Hvert innihaldsefni er valið með áherslu á gæði, uppruna og tilgang.

    Við leitumst við að nota hráefni sem styðja hvert annað og mynda heildstæða samsetningu, frekar en að velja sem flest innihaldsefni.

    Lífsþróttur er kjarninn í öllu sem við gerum.

    Markmið okkar er að þróa vörur sem styðja við daglega orku, jafnvægi og vellíðan svo þú getir notið hvers dags af meiri krafti.

    Við leggjum ríka áherslu á ábyrgt val á hráefnum, vandaðar samsetningar og framleiðslu samkvæmt ströngum gæðakröfum.

    Hver vara er þróuð með það að markmiði að sameina náttúru og þekkingu í lausnum sem þú getur treyst.

    Við trúum því að bestu lausnirnar verði til þegar náttúruleg hráefni og nútímaþekking vinna saman.

    Þess vegna byggjum við vörurnar okkar á vandlega völdum innihaldsefnum sem eru valin með bæði hefð og rannsóknir að leiðarljósi.

    ísland er hluti af sögu Ingling. Með framleiðslu hér heima getum við sameinað íslenskan uppruna, vandlega valin hráefni og ströng gæðaviðmið í vörum sem við erum stolt af að setja á markað.