Fjörugrös Stærri – Íslenskur Irish sea moss

(2)

Joð og kalk úr þremur íslenskum þörungum, handtíndum við Íslandsstrendur.

  • Joð fyrir skjaldkirtilinn
  • Kalk fyrir bein og tennur
  • Þrír íslenskir þörungar
  • Handtínt við Íslandsstrendur

• Þá sem vilja íslenskt sea moss, beint úr fjörunni
• Þá sem vilja hugsa vel um hár, húð og neglur innan frá
• Þá sem vilja steinefnaríkt hráefni úr hreinum, köldum sjó
• Þá sem borða lítið af fiski og vilja fá joð úr náttúrulegri uppsprettu

Ráðlagður neysluskammtur: 2 hylki.

Þörungar

Íslensk fjörugrös (Chondrus crispus) • Íslenskt klóþang (Ascophyllum nodosum) • Íslenskur kalkþörungur (Lithothamnion)

Steinefni

Joð 150 mcg (100% NV) • Kalk 135 mg

Pakkning

Stærri krukka: 180 hylki • 90 daga skammtur miðað við 2 hylki á dag.

Minni krukka: 90 hylki • 45 daga skammtur miðað við 2 hylki á dag.

Hvað eru fjörugrös?

Fjörugrös (Chondrus crispus) eru rauðþörungur sem á ensku kallast Irish moss eða sea moss. Þau frá Ingling eru handtínd við suðurströnd Íslands og í hylkjunum eru þau ásamt klóþangi úr Breiðafirði og íslenskum kalkþörungi.

Hversu mikið joð er í dagskammti?

2 hylki gefa 150 µg af joði, sem er 100% af viðmiðunargildi, og 135 mg af kalki. Joð stuðlar að eðlilegri starfsemi skjaldkirtils og eðlilegum orkuefnaskiptum.

Hver er munurinn á 90 og 180 hylkjum?

Sama vara, stærri krukka. 180 hylki eru 90 daga skammtur og hagstæðari á hvert hylki.

Hvernig á að taka Fjörugrös?

2 hylki á dag með mat. Ekki taka aðrar joðvörur samhliða án þess að telja saman – efri mörk joðs eru 600 µg á dag.

Hverjir ættu að fara varlega?

Fólk með skjaldkirtilssjúkdóm ætti að ráðfæra sig við lækni fyrst, því joð hefur áhrif í báðar áttir. Getur innihaldið snefil af fiski, krabbadýrum og skeldýrum.

Af hverju íslenskt sea moss?

Hafið við Ísland er kalt og fjarri iðnaði; þungmálmamælingar í íslensku þangi eru með þeim lægstu sem þekkjast. Mest af sea moss á markaðnum er ræktað í heitum sjó í Asíu eða Karíbahafi.

Fjörugrös — írskur sjávarmosi (Chondrus crispus)

Fjörugrös eða írskur sjávarmosi, sem á ensku kallast Irish moss vaxa við strendur Íslands, nánar tiltekið á suður- og suðvesturhluta landsins. Þau hafa verið nýtt til manneldis öldum saman og innihalda meðal annars prótín, A- og B1-vítamín, joð og steinefni á borð við kalín, magnesíum, járn og fosfór.

Sjávarmosinn okkar er handtíndur við Íslandsstrendur, ólíkt meirihluta þess sjávarþangs sem er á markaði í dag. Um 97% af sjávargróðri heimsins er ræktaður og kemur stór hluti hans frá Suðaustur-Asíu, því er megnið af þeim sjávarmosa sem sagður er “handtíndur” það ekki.

Klóþang (Ascophyllum nodosum)

Klóþang er brúnþörungur sem vex í fjörum við Íslandsstrendur og er meðal joðríkustu hráefna sem finnast í náttúrunni. Það er ein elsta og þekktasta nytjaplanta Norður-Atlantshafsins og hefur verið nýtt í aldir, bæði til manneldis og sem fóður.

Kalkþörungur (Lithothamnion)

Kalkþörungur er rauðþörungur sem vex á hafsbotni við Ísland og ber náttúrulegt kalk ásamt fjölda steinefna í lífrænu formi. Sérstaða Lithothamnion felst í því að kalkið situr í náttúrulegri þörungabyggingu, ólíkt hefðbundnum kalkgjöfum á borð við kalsíumkarbónat úr bergi.

Joð (150 mcg í dagskammti)

Joð stuðlar að eðlilegri starfsemi skjaldkirtils og framleiðslu skjaldkirtilshormóna. Joð stuðlar einnig að eðlilegri vitsmunastarfsemi, starfsemi taugakerfisins, eðlilegum orkuefnaskiptum, heilbrigði húðar og eðlilegum vexti barna.

Kalk (135 mg í dagskammti)

Kalk er nauðsynlegt til að viðhalda heilbrigði beina og tanna. Kalk stuðlar einnig að eðlilegri vöðvastarfsemi, taugaboðmiðlun, blóðstorknun, eðlilegum orkuefnaskiptum, eðlilegri starfsemi meltingarensíma, frumuskiptingu og sérhæfingu frumna.

23,990 kr

Til á lager

Pakkning: 180 hylki

Fljótleg og örugg afhending með Dropp og Póstinum.

Sent samdægurs á höfuðborgarsvæðinu ef pantað er fyrir kl. 12:00.

Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 15.000 kr.

Ráðlagður dagskammtur: 2 hylki.

Takið hylkin með vatni og helst máltíð.

180 hylki • 90 daga skammtur

Ofnæmisvaldar

Varan inniheldur hráefni úr sjó og getur því innihaldið snefilmagn af fiski, krabbadýrum og skeldýrum.

Hverjir ættu að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk?

Leitið ráðgjafar hjá lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni fyrir notkun ef þið:

  • Eruð þunguð eða með barn á brjósti.
  • Takið lyf eða glímið við undirliggjandi sjúkdóm.
  • Eruð með ofnæmi fyrir einhverjum innihaldsefna vörunnar.

Leiðbeiningar um notkun og geymslu

Fylgið ráðlögðum dagskammti. Ekki skal fara yfir ráðlagðan dagskammt. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu eða heilbrigðs lífsstíls. Geymið á köldum og þurrum stað, fjarri beinu sólarljósi. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Afgreiðsla pantana
Pantanir sem berast fyrir kl. 12:00 á virkum dögum eru sendar samdægurs með Dropp eða Póstinum. Pantanir sem berast eftir hádegi eru að jafnaði sendar næsta virka dag.

Sendingarkostnaður
Frí sending á öllum pöntunum yfir 15.000 kr. Fyrir minni pantanir reiknast sendingarkostnaður í greiðsluferlinu.

Skil og endurgreiðslur
Óopnuðum vörum má skila innan 30 daga. Ef þú ert ekki ánægð(ur) með vöruna eða eitthvað kemur upp, hafðu samband og við finnum lausn saman.

Nánar: Sendingar og afhending · Skil og endurgreiðslur

Öruggir greiðslumöguleikar

    Greiddu með korti eða dreifðu greiðslum með Netgíró.

    Fjörugrös 180 hylki – íslenskur sea moss, klóþang og kalkþörungur frá Ingling

    23,990 kr

    23,990 kr

    Customer Reviews

    Overall rating: 5.0 / 5 from 2 reviews.

    Fæðubótarefni frá Ingling, framleidd í Mosfellsbæ

    AFHVERJU INGLING

    Hvert innihaldsefni er valið með áherslu á gæði, uppruna og tilgang.

    Við leitumst við að nota hráefni sem styðja hvert annað og mynda heildstæða samsetningu, frekar en að velja sem flest innihaldsefni.

    Lífsþróttur er kjarninn í öllu sem við gerum.

    Markmið okkar er að þróa vörur sem styðja við daglega orku, jafnvægi og vellíðan svo þú getir notið hvers dags af meiri krafti.

    Við leggjum ríka áherslu á ábyrgt val á hráefnum, vandaðar samsetningar og framleiðslu samkvæmt ströngum gæðakröfum.

    Hver vara er þróuð með það að markmiði að sameina náttúru og þekkingu í lausnum sem þú getur treyst.

    Við trúum því að bestu lausnirnar verði til þegar náttúruleg hráefni og nútímaþekking vinna saman.

    Þess vegna byggjum við vörurnar okkar á vandlega völdum innihaldsefnum sem eru valin með bæði hefð og rannsóknir að leiðarljósi.

    ísland er hluti af sögu Ingling. Með framleiðslu hér heima getum við sameinað íslenskan uppruna, vandlega valin hráefni og ströng gæðaviðmið í vörum sem við erum stolt af að setja á markað.