Kraftur – Test Booster (2026)

(72)

Næsta kynslóð af karlmannlegum lífskrafti, orku og hormónajafnvægi.

  • Styður hormónajafnvægi
  • Styður orku og úthald
  • Styður blóðrás og kynheilsu
  • Styður daglegan lífskraft

• Karlar sem vilja styðja við orku, úthald og eðlilega testósterónstarfsemi
• Þá sem æfa reglulega og vilja gera það af auknum Krafti
• Karla sem líður eins og þeir eigi meira inni

Virk innihaldsefni

Furosap® Fenugreek Extract 500 mg • Himalayan Shilajit Extract (40% Fulvic Acid) 400 mg • Cordyceps Sinensis Extract 300 mg • KSM-66® Ashwagandha Extract 250 mg • Coleus forskohlii Extract 250 mg • Nettle Root Extract (7–8% β-Sitosterol) 250 mg • Grape Seed Extract (95% OPC) 150 mg • Tribulus terrestris Extract (40% Saponins) 150 mg • Íslenskt klóþang 150 mg • Maca Root Extract 100 mg • Damiana Extract 100 mg • Íslensk villt ber (Aðalbláber og Krækiber) 100 mg • Rhodiola Rosea Extract 80 mg • Algalíf® Astaxanthin 4 mg

Steinefni og vítamín

Zinc (glycinate) 12 mg • Boron 7 mg • Copper (bisglycinate) 900 mcg • Selenium (selenriched yeast) 100 mcg • Vitamin D3 50 mcg • Vitamin K2 100 mcg • Iodine (úr klóþangi) 130 mcg

Pakkning

180 hylki • 30 daga • 6 hylki á dag • Nettóþyngd 277 g

Hvað er Kraftur?

Kraftur er test booster frá Ingling – fæðubótarefni fyrir karla sem styður við eðlilega testósterónstarfsemi, orku og úthald. Það er framleitt á Íslandi úr jurtaútdráttum, steinefnum og vítamínum.

Hvað er í Kraft?

Furosap® fenugreek 500 mg, Himalaya-shilajit 400 mg, cordyceps 300 mg, KSM-66® ashwagandha 250 mg, Coleus forskohlii 250 mg, brenninetlurót 250 mg, vínberjakjarni 150 mg, Tribulus terrestris 150 mg, íslenskt klóþang 150 mg, maca 100 mg, damiana 100 mg, íslensk villt ber 100 mg, Rhodiola rosea 80 mg og Algalíf® astaxanthín 4 mg. Auk þess sink, bór, kopar, selen, D3, K2 og joð.

Hækkar Kraftur testósterón?

Kraftur inniheldur sink, sem stuðlar að viðhaldi eðlilegs testósteróns í blóði, auk Furosap® fenugreek og shilajit sem rannsóknir benda til að styðji við náttúrulega hormónastarfsemi karla.

Hvernig á að taka Kraft?

6 hylki á dag, helst að morgni með máltíð sem inniheldur prótein og fitu. Mælt er með samfelldri notkun í allt að þrjá mánuði og síðan mánaðarhléi.

Má taka Kraft með öðrum Ingling-vörum?

Já, Kraftur er oft tekinn með Djúpum svefn eða Sveppablöndu. Athugið að Kraftur inniheldur nú þegar KSM-66® ashwagandha, D3, K2 og sink, svo ekki er þörf á að taka þau efni sérstaklega.

Hverjir ættu ekki að taka Kraft?

Kraftur er ætlaður fullorðnum körlum. Ráðfærið ykkur við lækni ef þið takið lyf, eruð með skjaldkirtilssjúkdóm eða annan undirliggjandi sjúkdóm. Inniheldur mjólk og hráefni úr sjó.

Hvar er Kraftur framleiddur?

Í framleiðslu Ingling í Mosfellsbæ.

Furosap® Fenugreek Extract (500 mg)

Furosap® Fenugreek (Trigonella foenum-graecum) er staðlaður útdráttur úr fenugreek sem hefur verið rannsakaður fyrir áhrif sín á hormónastarfsemi karla. Rannsóknir benda til þess að Furosap® geti stutt við náttúrulega testósterónframleiðslu, kynhvöt og líkamlega frammistöðu.

Himalayan Shilajit Extract (400 mg, 40% Fulvic Acid)

Shilajit er náttúrulegt efni sem myndast við hæga niðurbrotnun plöntuefna í fjalllendi yfir aldir. Rannsóknir benda til þess að Shilajit geti stutt við orkuframleiðslu frumna, eðlilega hormónastarfsemi og frjósemi. Einnig benda rannsóknir til þess að það geti stuðlað að betri nýtingu næringarefna.

Cordyceps Sinensis Extract (300 mg)

Cordyceps (Cordyceps sinensis) hefur verið notaður í hefðbundnum austurlenskum jurtalækningum um aldir. Rannsóknir benda til þess að Cordyceps geti stutt við orkuefnaskipti, aukið líkamlegt úthald og dregið úr þreytu. Einnig benda rannsóknir til þess að Cordyceps geti stuðlað að daglegum lífskrafti.

KSM-66® Ashwagandha Extract (250 mg)

KSM-66® Ashwagandha (Withania somnifera) er mest rannsakaða staðlaða útdráttarform ashwagandha. Rannsóknir benda til þess að KSM-66® geti stutt við streituþol, bætt svefn og stuðlað að andlegri og líkamlegri vellíðan.

Coleus forskohlii Extract (250 mg)

Coleus forskohlii hefur lengi verið notað í hefðbundinni ayurvedískri lækningafræði. Rannsóknir benda til þess að virka efnið forskólín geti stutt við eðlileg orkuefnaskipti, líkamssamsetningu og hormónastarfsemi.

Nettle Root Extract (250 mg)

Brenninetlurót (Urtica dioica) hefur verið notuð í evrópskri jurtalækningu um aldir. Rannsóknir benda til þess að brenninetlurót geti stutt við eðlilega starfsemi blöðruhálskirtils og stuðlað að heilbrigði þvagfæra og hormónajafnvægi karla.

Grape Seed Extract (150 mg)

Vínberjakjarnaútdráttur (Vitis vinifera) er ríkur af OPC-fjölfenólum sem hafa öfluga andoxandi eiginleika. Rannsóknir benda til þess að grape seed extract geti stutt við blóðrás, heilbrigði æða og verndað frumur gegn oxunarálagi.

Tribulus terrestris Extract (150 mg)

Tribulus terrestris hefur lengi verið notað í hefðbundnum jurtalækningum. Rannsóknir benda til þess að Tribulus geti stutt við kynhvöt og kynheilsu. Áhrif á testósterón hafa hins vegar ekki verið sýnd með samræmdum hætti í klínískum rannsóknum.

Íslenskt klóþang (150 mg)

Íslenskt klóþang (Ascophyllum nodosum) er náttúruleg uppspretta joðs og annarra snefilefna. Rannsóknir benda til þess að joð og selen styðji við eðlilega starfsemi skjaldkirtils sem gegnir mikilvægu hlutverki í orkuefnaskiptum og hormónajafnvægi.

Maca Root Extract (100 mg)

Maca (Lepidium meyenii) hefur verið notað í Andesfjöllum um aldir. Rannsóknir benda til þess að Maca geti stutt við kynhvöt, orku og lífskraft. Einnig benda rannsóknir til þess að Maca geti stuðlað að auknu streituþoli og almennri vellíðan.

Damiana Extract (100 mg)

Damiana (Turnera diffusa) hefur lengi verið notuð í hefðbundnum jurtalækningum. Rannsóknir benda til þess að Damiana geti stutt við kynhvöt, kynheilsu og almenna vellíðan.

Íslensk villt aðalbláber og krækiber (100 mg)

Íslensk villt aðalbláber og krækiber eru rík af anthósýanínum og öðrum fjölfenólum með öfluga andoxandi eiginleika. Rannsóknir benda til þess að þessi plöntusambönd geti stutt við heilbrigði æða, blóðrás og verndað frumur gegn oxunarálagi.

Rhodiola Rosea Extract (80 mg)

Rhodiola Rosea er vel rannsakað adaptógen sem hefur lengi verið notað til að auka aðlögunarhæfni líkamans við streitu. Rannsóknir benda til þess að Rhodiola geti stutt við andlega og líkamlega frammistöðu, dregið úr þreytu og bætt einbeitingu.

Algalíf® Astaxanthin (4 mg)

Algalíf® Astaxanthin er náttúrulegt andoxunarefni unnið úr örþörungum. Rannsóknir benda til þess að astaxanthín geti stutt við heilbrigði húðar, verndað frumur gegn oxunarálagi og stuðlað að eðlilegri bólgusvörun. Einnig benda rannsóknir til þess að það geti stutt við sjón og bata eftir líkamlegt álag.

Black Pepper Extract (Piperine)

Piperine, virka efnið í svörtum pipar, er þekkt fyrir að auka frásog ákveðinna næringarefna og jurtaútdrátta. Rannsóknir benda til þess að piperine geti stuðlað að betri nýtingu virkra innihaldsefna í formúlunni.

Steinefni og vítamín

Sink, bór, kopar, selen, D3-vítamín, K2-vítamín og joð mynda mikilvægan grunn fyrir eðlilega hormónastarfsemi, orkuefnaskipti, ónæmiskerfið og skjaldkirtil. Vel frásoganleg form steinefnanna stuðla að góðri nýtingu og styðja við daglega heilsu og lífskraft.

15,990 kr

Til á lager

Pakkning: 180 hylki

Fljótleg og örugg afhending með Dropp og Póstinum.

Sent samdægurs á höfuðborgarsvæðinu ef pantað er fyrir kl. 12:00.

Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 15.000 kr.

Ráðlagður dagskammtur: 6 hylki. Best er að taka hylkin með máltíð sem inniheldur fitu og prótein til að stuðla að betra frásogi virku næringarefnanna.

Mælt er með að nota Kraft samfellt í allt að þrjá mánuði og taka síðan eins mánaðar hlé áður en notkun er hafin á ný.

Ofnæmisvaldar

Inniheldur MJÓLK og hráefni sótt úr sjó getur því innihaldið snefilmagn af fiski, krabbadýrum og skeldýrum.

Hverjir ættu að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk?

Leitið ráðgjafar hjá lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni fyrir notkun ef þið:

  • Eruð þunguð eða með barn á brjósti.
  • Takið lyf eða glímið við undirliggjandi sjúkdóma, þar á meðal skjaldkirtilssjúkdóma.
  • Eruð með ofnæmi fyrir einhverjum innihaldsefna vörunnar.

Leiðbeiningar um notkun og geymslu

Fylgið ráðlögðum dagskammti. Ekki skal fara yfir ráðlagðan dagskammt.

Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu eða heilbrigðs lífsstíls.

Geymið á köldum og þurrum stað, fjarri beinu sólarljósi.

Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Afgreiðsla pantana
Pantanir sem berast fyrir kl. 12:00 á virkum dögum eru sendar samdægurs með Dropp eða Póstinum. Pantanir sem berast eftir hádegi eru að jafnaði sendar næsta virka dag.

Sendingarkostnaður
Frí sending á öllum pöntunum yfir 15.000 kr. Fyrir minni pantanir reiknast sendingarkostnaður í greiðsluferlinu.

Skil og endurgreiðslur
Óopnuðum vörum má skila innan 30 daga. Ef þú ert ekki ánægð(ur) með vöruna eða eitthvað kemur upp, hafðu samband og við finnum lausn saman.

Nánar: Sendingar og afhending · Skil og endurgreiðslur

Öruggir greiðslumöguleikar

    Greiddu með korti eða dreifðu greiðslum með Netgíró.

    Kraftur test booster 180 hylki frá Ingling

    15,990 kr

    15,990 kr

    Customer Reviews

    Overall rating: 4.5 / 5 from 72 reviews.

    Finn mikla breytingu á orku, einbeitingu og almennri vellíðan. Algjör bylting að mínu mati.

    KRAFTUR - Test Booster

    I feel more energy after 1 week to try and yes i will keep using it everyday, thanks a lot

    Kraftur (2026) - Ný uppskrift

    Allt annar, vakna ferskari, meira úthald, meiri gleði, betri fókus! Allt sem ég var að leita að.

    Kraftur (2026) - Ný uppskrift

    Kraftur hjálpar mér bæði við hvíld og recovery sem er akkúrat það sem ég var að leita að. Ég hef aðeins tekið þetta í tæpan hálfan mánuð en er ekki frá því að þetta sé strax farið að skila árangri.

    KRAFTUR - Test Booster (2025)

    Hæ - keypti þetta handa eiginmanninum sem er búin að fara í gegnum krabbameins meðferðir og var algjörlega orkulaus og eftir 1/2mánuð sjáum við og hann upplifir mikinn mun. Þess vegna segjum við bara takk fyrir ykkar frábæru vöru

    KRAFTUR - Test Booster (2025)

    Kannski sniðugt að taka það fram ofarlega í lýsingu að það sé fiski afurð í þessu. Sá það bara þegar þetta kom og ég er með bráðaofnæmi, get ekki notað þetta

    KRAFTUR - Test Booster

    Ég er betri að vakan á morgnanna og síður þreyttur yfir daginn

    KRAFTUR - Test Booster

    Hef nú tekið TestBooster frá ykkur í 6mán.+ og ég verð að segja að ég hafði 0% trú að því að þetta gerði nokkuð til að byrja með. En ég þrjóskaðist áfram og hélt áfram að versla við ykkur. Það er ekki fyrr en þegar ég lít yfir tímabilið í heild, að þá sé ég ég væri að ljúga ef ég héldi því fram að þetta væri "enn ein snákaolían, frá enn einu peninga-fíflinu" eins og allt það sem ég hafði kynnst áður frá heimi svokallaða fæðubótaefna. (hef allatíð kallað öll vítamín/bætiefni "Frískamín" sem háðs-ádeilu, með vísan í drykk úr fortíðinni) Ég sé nú samt núna greinilegan mun á sjálfum mér á margan og mismunandi hátt, en ef ég nefni dæmi þá: - svefn gæði hafa aukist (ég hvílist "rétt") - vöðvar og stoðkerfi mikið "léttari", ekki "stirður og þungur" í hreifingu - huglæg færni hefur skerpst og ég á auðveldara með að halda "jafnaðargeði" út daginn (fyrriparts "þokan" horfin sem og seinniparts "lægðin" líka - kúrvan er jöfn frá morgni til kvölds) - sprengikraftur allt annar (er 40 ára, finnst ég vera að fá þol aftur sem ég taldi að hefði farið með þrítugsaldrinum) ...og svo mætti lengi telja, en er pínu erfitt að lýsa því öllu nákvæmlega. Sérstaklega þegar maður er hálfpartinn að "kæfa niður gömul rök frá efasemdamanninum sjálfum mér" - því ég er bókstaflega að upplifa, mis mikla, magnaða hluti sem mér datt aldrei í hug að ég myndi nokkurn tíma upplifa með því að "fá mér eitthvað Frískamín"! Bottom line guys: Þið hafið snúið efasemdamann, þráðbeint niður - andlitið fyrst - í gólfið, og vakið hann upp fyrir mikilvægi *réttra* fæðubótarefna og notkun þeirra og líka sannað fyrir okkur hinum, að ef hlutirnir eru gerðir af; trú, metnaði og heiðarleika, með góðri klípu af hreinum ásetningi og kærleik til náungans - þá blómstrar garðurinn náttúrulega best. (alls engin væmni hérna, það er bara augljóst að vörurnar ykkar eru gerðar af heilindum og seldar af heilindum - og almenn skynsemi höfð í hávegum) Gæti ekki verið ánægðari, með vöruna og ekki síst allt sem tengist utanumhaldi, framleiðslu, framsetningu osf. Augljóslega topp-fólk að gera fallega hluti hjá ykkur - fyrir okkur - svo ég lýk álitsgjöfinni á þessum orðum: Plís, aldrei breytast - ekki hætta! Takk fyrir mig! --- Jón Ingvar Marroquin Hjaltason e.þ.s. "Rolling" John McAnger

    KRAFTUR - Test Booster

    svínvirkar fyrir mig 34 ára karlmann. orkan er stöðug yfir daginn og drifkrafturinn til staðar

    KRAFTUR - Test Booster

    Búinn með ca 3 vikur af Kraft,er í 3 mánaðar áskrift. Fann muninn eftir fyrstu vikuna. Mikil orka og styrkur sem fylgir. Boostaði enþá meira afþví mataræðið er lika i lagi! Mæli hiklaust með! Takk fyrir mig!

    KRAFTUR - Test Booster

    Mjög fínt, ekki liðinn svo langur tími svo ég veit ekki hversu milill munurinn er

    KRAFTUR - Test Booster

    Búinn að taka þetta í meira en mánuð, og hefur því miður gert lítið fyrir mig.

    KRAFTUR - Test Booster

    Miklu orkumeiri, prófaði að taka smá pásu um daginn og fann hversu góð áhrif þetta hefur á mig . Mun skýrari í hausnum og með jafna orku út daginn,

    KRAFTUR - Test Booster

    Frábær vara. Eftir um viku af inntöku byrjaði ég að finna mun og er orkumeiri og almennt hressari yfir daginn. Mæli hiklaust með.

    KRAFTUR - Test Booster

    Búinn með mánuð, fann engan mun en kannski kemur það í ljós þegar ég tek þetta ekki að það var munur. Þá mun ég breyta stjörnugjöfinni

    KRAFTUR - Test Booster

    Rúmar tvær vikur frá því ég byrjaði að taka Test Booster. Mér líður heilt yfir mjög vel með vöruna og ætla að halda áfram. Meiri orka og gott recovery.

    KRAFTUR - Test Booster

    Kraftur test booster frá Ingling við glóandi hraun

    AFHVERJU INGLING

    Hvert innihaldsefni er valið með áherslu á gæði, uppruna og tilgang.

    Við leitumst við að nota hráefni sem styðja hvert annað og mynda heildstæða samsetningu, frekar en að velja sem flest innihaldsefni.

    Lífsþróttur er kjarninn í öllu sem við gerum.

    Markmið okkar er að þróa vörur sem styðja við daglega orku, jafnvægi og vellíðan svo þú getir notið hvers dags af meiri krafti.

    Við leggjum ríka áherslu á ábyrgt val á hráefnum, vandaðar samsetningar og framleiðslu samkvæmt ströngum gæðakröfum.

    Hver vara er þróuð með það að markmiði að sameina náttúru og þekkingu í lausnum sem þú getur treyst.

    Við trúum því að bestu lausnirnar verði til þegar náttúruleg hráefni og nútímaþekking vinna saman.

    Þess vegna byggjum við vörurnar okkar á vandlega völdum innihaldsefnum sem eru valin með bæði hefð og rannsóknir að leiðarljósi.

    ísland er hluti af sögu Ingling. Með framleiðslu hér heima getum við sameinað íslenskan uppruna, vandlega valin hráefni og ströng gæðaviðmið í vörum sem við erum stolt af að setja á markað.