UM OKKUR -

Tveir eigendur, tvær sérgreinar

Daníel Ingi er líftæknifræðingur og leiðir hann alla vöruþróun. Andri Rúnar Gunnarsson er lögfræðingur og heldur utan um rekstur ofl. Þannig koma þeir frá ólíkum bakgrunni og með ólíka sérfæðikunnáttu að borðinu, en eru þó báðir með sama leiðarljós og sömu kröfur: að varan virki.

„Við viljum hjálpa fólki að vera besta útgáfan af sjálfu sér. Vörurnar eru eitthvað sem við sjálfir treystum og stöndum 100% á bak við.“

Sagan okkar

Ingling varð ekki til út frá einni hugmynd. Fyrirtækið varð til úr tveimur ólíkum vegferðum sem, án þess að nokkuð var skipulagt, stefndu smám saman að sama stað.

Daníel og Andri koma úr ólíkum áttum og með ólíka sérþekkingu að borðinu. Fimmtán ára aldursmunur er á þeim, sem færir jafnframt ólíka reynslu og sjónarhorn inn í samstarfið. Sem eigendur koma þeir þó báðir að flestum þáttum starfseminnar. Það sem sameinar þá er ekki aðeins fyrirtækið sjálft, heldur sú sannfæring að vörur eigi að hafa skýran tilgang og skila því sem þeim er ætlað.

 

Fyrstu fræin að Ingling voru sáð löngu áður en fyrirtækið fékk nafn.


Hjá Daníel hófst vegferðin einn vetur í norskum skógi, þar sem hann hafði dregið sig nær náttúrunni með það markmið að byggja sig upp, bæði líkamlega og andlega. Þar vakanaði áhugi hans á fæðubótarefnum, lækningajurtum og því hvernig hægt væri að nýta náttúruleg efni á markvissan hátt. Forvitnin varð fljótt að ástríðu. Hann fór að lesa, ranssaka, prófa og að lokum þróa sínar eigin blöndur.

 

Á sama tíma átti Andri sína eigin ástæðu til að leita svara.

Rétt fyrir þrítugt greindist hann með psoriasis sem breiddist út um stóran hluta líkamans. Í leit að leiðum til að bæta eigin líðan fór hann að leggja aukna áherslu á lífsstíl, næringu og náttúruleg fæðubótarefni og jurtir. Með tímanum fann hann mikinn mun á eigin líðan og í dag eru einkenni psoriasis nánast horfin. Reynslan mótaði sýn hans á heilsu og vakti áhuga á því hvernig litlar, markvissar breytingar geta haft raunveruleg áhrif á líðan fólks.

Smám saman runnu þessar tvær ólíkar sögur saman. Önnur úr forvitni, tilraunum og leit að því að byggja sig upp. Hin úr persónlegri þörf til að finna betri leið.

Blöndurnar sem Daníel hafði þróað fyrir sjálfan sig fóru að rata til fólks í kringum hann. Fólk prófaði þær, fann mun og kom aftur til að fá meira. Eftirspurnin varð til áður en fyrirtækið sjálft var orðið að veruleika. Það sem hafði byrjað sem persónuleg leit fór að líkjast einhverju stærra.

Þegar vegir Daníels og Andra mættust varð ljóst að þeir höfðu, hvor með sínum hætti, verið að leita að því sama: einfaldari og markvissari leiðum til að nýta það besta úr náttúrunni, studdu af þekkingu og með skýran tilgang að leiðarljósi.

Úr þeirri sameiginlegu sýn varð Ingling eins og það er í dag til.

Í dag mætast þar ólík sjónarhorn þeirra. Líftækni og rekstur. Rannsóknir og reynsla. Náttúran og nútímaleg þekking. Þeir eru ekki alltaf sammála um leiðina, en eru sammála um hvert skal stefna: að þróa vandaðar vörur þar sem gæði, virkni og tilgangur eru ekki aukaatriði heldur grunnurinn að öllu sem gert er.

Sagan okkar hófst því ekki daginn sem Ingling var stofnað. Hún hófst löngu fyrr, þegar tveir menn fóru hvor sína leið í leit að betri svörum.

Ingling er staðurinn þar sem þær leiðir mættust.

Og sagan er rétt að byrja.

Nafnið

Ingling vísar í hvoru tveggja; fræ og vöxt. Það er ekki tilviljun. Markmiðið hefur aldrei verið að selja skyndilausnir heldur leiðina að því að öðlast lífskraft sem endist — og til að vaxa þarf að sá fræum.

Náttúran er lausnin

En náttúran ein og sér er ekki töfralausn

Það tekur okkur mörg ár að komast á slæman stað líkamlega og andlega. Að sama skapi tekur það tíma að vinda ofan af slíkri þróun og snúa henni við.  Sá sem lofar þér öðru er að selja þér eitthvað annað en heilsu, skyndilausnir sem geta haft neikvæðari áhrif þegar líður á.

Líkaminn er kerfisbundin, alveg eins og náttúran. Við náum sem bestri heilsu þegar að hún er studd af þekkingu, með réttum formúlum, réttum skömmtum og réttri lífeðlisfræðilegri nálgun. Þar kemur líftæknin inn.

Hráefni sem vex hvergi annars staðar

Fjörugrösin okkar eru tínd við suðurstrendur landsins af starfsfólki Ingling, vinum og fjölskyldu. Þau eru alltaf klippt, aldrei rifin upp með rótum, því auðlindin þarf að endurnýja sig og hún gerir það ekki ef við göngum illa um hana.

Fjörugrös við Ísland eru einstaklega hrein og rík af próteini, A- og B1-vítamíni og joði og hafa verið nýtt hér frá landnámi. Það er ástæða fyrir því.

Við sækjum líka astaxanthín ræktað á Íslandi, villt íslensk ber og salt unnið úr sjó hér við land. Við nýtum eins mikið af íslenskum hráefnum og hægt er.

Vestrænt og austrænt eru ekki andstæður

Vestræn vísindi gefa okkur mælanlegan árangur og nákvæmni á meðan austræn fræði gefa samhengi og jafnvægi. Við stillum þeim ekki upp á móti hvort öðru heldur nýtum samvirknina á milli þeirra. Þau efla hvort annað og hjálpa okkur að svara sömu spurningunni: hvernig fáum við sem mesta virkni út úr vörunni fyrir þann sem tekur hana?

Formin skipta máli

Hráefni úr náttúrunni er upphafspunktur, ekki gæðastimpill. Magnesíum úr steinefni og magnesíum bundið glýsíni eru bæði náttúruleg — en líkaminn nýtir það ekki eins.

Þess vegna veljum við formin sérstaklega:

  • Bisglýsínöt fyrir magnesíum, sink og járn — bundin amínósýru, mildari fyrir magann
  • Seleníserað ger fyrir selen, sama form og fæðan gefur
  • K2 sem MK-7 úr gerjun, með mun lengri líftíma í blóði en MK-4
  • KSM-66® ashwagandha, sá extrakt sem flestar birtu rannsóknirnar nota
  • Astaxanthín frá Algalíf, ræktað hér á landi

Fæðubótarefni eru verkfæri, ekki lausn

Svefn, næring, hreyfing og streitustjórnun bera uppi heilsuna. Fæðubótarefni eru aðeins einn hlekkur í þeirri keðju — en mikilvægur hlekkur. Byrjaðu einfalt, settu þér raunhæf markmið og byggðu upp rútínu sem virkar til lengri tíma. Heilsa byggist upp með endurtekningu, ekki átaki. 

Gæði & framleiðsla

Allt gerist í Mosfellsbæ

Ekki hjá samningsframleiðanda erlendis sem framleiðir líka vörur fyrir keppinauta okkar. Hráefnin koma til okkar í Mosfellsbæ þar sem við blöndum, hylkjum og pökkum sjálf. Þróun á nýjum vörum fer fram í sama húsi.

Framleiðslan sjálf fylgir ströngum íslenskum og evrópskum stöðlum með áherslu á hreinleika, rekjanleika og stöðugleika.

Aðeins skilgreind virk efni

Við setjum ekkert í neina vöru sem við getum ekki rökstutt. Hvert virkt hráefni er stutt af vísindalegum bakgrunni,  hefur staðlað útdráttarhlutfall og er notað í skammti sem er ákveðinn út frá því sem rannsóknir sýna að virkar sem best  — ekki því sem lítur best út á miðanum. Við notum engin aukaefni ‚bara til að fylla hylkið‘.

Leiðin frá hráefni í selda vöru

Móttaka. Hver sending kemur með greiningarvottorði. Það er borið saman við pöntunina áður en nokkuð fer á lager.

Blöndun. Allt er vigtað eftir skjalfestum forskriftum. Hver lota fær lotunúmer sem hægt er að rekja alla leið aftur í hráefnasendinguna.

Hylkjun.Þyngdareftirlit í gegnum keyrsluna svo innihaldið standist það sem stendur á miðanum.

Pökkun. Lotunúmer og fyrningardagsetning á hverri vöru. Ef eitthvað kemur upp getum við alltaf rakið nákvæmlega hvaða vörur komu úr þeirri lotu.

Þróun sem tekur tíma

Nýjar formúlur verða til hér. Við lesum birtar rannsóknir, hönnum forskrift, keyrum prufulotu og lögum hana. Sumar vörur fara í gegnum nokkrar umferðir áður en þær standast það sem við ætluðum þeim.

„Það er ekkert mikilvægara en að halda áfram að byggja þetta upp með heilindum.“

 Við eigum bara einn líkama

Hann er farartækið sem þarf að endast alla ævina. Þess vegna setjum við gæði og langvarandi virkni framar magni og skyndilausnum — og þess vegna er verksmiðjan okkar hér, þar sem við sjáum með eigin augum hvað fer ofan í hverja einustu vöru.