14 vörur
Flokka eftir:
14 vörur
Rauðrófuextrakt Inglings
450 mg af útdrætti úr rauðrófum. Með háum styrkleika færðu kjarnann úr rauðrófunni í hverjum skammti.
Rauðrófur innihalda náttúruleg nítröt, trefjar og litarefni af flavín gerð sem eru mikið rannsökuð í tengslum við líkamsstarfsemi og næringu. Rauðrófur eru hluti af fjölbreyttri og hollri fæðu og hafa verið notaðar í langan tíma sem hluti af íþróttafæði og daglegu mataræði fólks víða um heim.
Þessi vara inniheldur engin örvandi efni, eingöngu náttúrulegt extrakt úr rauðrófum.
Innihaldslýsing: Rauðrófur 450mg
Önnur innihaldsefni: Hylki úr jurtabeðmi
Nettóþyngd: 168 g
Cordyceps – náttúrulegt úthald og orkuaukandi sveppur
Cordyceps (cordyceps sinensis) er sveppur sem hefur verið notaður í hefðbundnum asískum lækningum öldum saman fyrir áhrif sín á orku, úthald og almenna vellíðan. Á síðustu árum hefur hann vakið áhuga íþróttafólks og þeirra sem vilja bæta orkunýtingu líkamans á náttúrulegan hátt.
Hann hefur verið hluti af þjóðlegum siðum og hefðum öldum saman, sérstaklega í Kína. Kínverska liðið á 1992 ólympíuleikunum sem kölluðu það ,,Leynivopnið" sitt
Helstu áhrif cordyceps:
-
Stuðlar að betri orkunýtingu:
cordyceps inniheldur efnasambönd eins og cordycepin og adenósín, sem geta stutt við framleiðslu á ATP (adenósínþrífosfat) – orkuefninu sem frumur nota til að knýja líkamlega virkni. -
Bætir súrefnisnýtingu:
sumar rannsóknir benda til að cordyceps geti bætt súrefnisnýtingu líkamans, sem gæti leitt til aukins úthalds við líkamlega áreynslu. -
Andoxunarefni og bólguminnkandi eiginleikar:
cordyceps er ríkur af andoxunarefnum sem geta hjálpað til við að draga úr oxunarálagi og styðja við endurheimt eftir áreynslu. -
Stuðningur við ónæmiskerfið:
sveppurinn inniheldur beta-glúkana og önnur efni sem talin eru styrkja ónæmiskerfið og auka mótstöðu gegn streitu.
Hverjum hentar cordyceps?
- Íþróttafólki sem vill styðja við úthald og endurheimt
- Þeim sem vilja auka daglega orku á náttúrulegan hátt
- Fólki sem leitar leiða til að styðja við almenna vellíðan og ónæmiskerfið
Ein flaska inniheldur 90 Hylki.
Innihald: Cordyceps 530mg, dextrín
Nettóþyngd: 168 g
Orkupakki – Kraftur og Orka í Einum Pakka
Fáðu sem mest út úr deginum með Orkupakkanum okkar! Við höfum sameinað vinsælustu flöskurnar okkar í einum pakka fyrir þá sem vilja upplifa fullkomna orku, jafnvægi og þrek. Með þessum pakka færðu Shilajit, Cordyceps, Ashwagandha, og Rauðrófur – allt saman á frábæru verði.
Hvað er innifalið?
- Shilajit: Náttúruleg orka og endurhleðsla.
- Cordyceps: Þol og frammistaða, uppáhaldið hjá íþróttafólki.
- Ashwagandha: Innri ró og streitustjórnun.
- Rauðrófur: Náttúruleg orka og næringarríkur stuðningur fyrir líkamann.
Af hverju að velja Orkupakkann?
- Sparaðu meira: Kaupir þú pakkann spararðu miðað við að kaupa vörurnar stakar.
- Allt sem þú þarft: Allar bestu vörurnar okkar í einum pakka fyrir kraft, jafnvægi og þol.
- Þægindi: Fáðu allt sent heim í einum pakka – einfalt og hagkvæmt.
Notkun:
- Fylgdu leiðbeiningum á hverri flösku fyrir hinn besta árangur
Reishi Sveppaútdráttur – 500 mg í hverju hylki
Leitaðu jafnvægis og vellíðunar með Reishi sveppaþykkni í hágæða hylkjum. Reishi hefur lengi verið þekktur fyrir einstaka eiginleika sína og hefur verið notaður í hefðbundnum lækningum í aldir. Hylkin okkar bjóða upp á þægilega og áhrifaríka leið til að njóta krafta þessa náttúrulega undurs.
Af hverju að velja Reishi útdrátt?
- Öflugur útdráttur: Hvert hylki inniheldur 500 mg af hreinu Reishi sveppaþykkni.
- Jafnvægi og ró: Hefðbundin notkun tengist innri ró og vellíðan.
- Auðvelt að nota: Fullkomið fyrir daglegt líf með skýrri skammtaákvörðun.
Ráðlagður skammtur:
Taktu 2 hylki á dag, eitt að morgni og eitt að kvöldi, með vatni.
Pakking:
- Hvert glas inniheldur 90 hylki fyrir 45 daga notkun.
Innihald:
500 mg af 100% hreinu Reishi sveppaútdrætti í hverju hylki, án aukaefna eða fylliefna
Hylki úr jurtabeðmi
Nettóþyngd: 168 g
Chaga Sveppir – Náttúrulegur styrkur úr villtri náttúru
Upplifðu mátt náttúrunnar með Chaga sveppum í þægilegum hylkjum. Chaga, sem hefur verið notaður í aldir fyrir einstaka eiginleika sína, kemur beint úr ósnortinni náttúru og er unninn með ástúð til að tryggja gæði og virkni.
Af hverju að velja Chaga sveppi?
- Náttúrulegur stuðningur: Hylkin eru hönnuð fyrir daglega vellíðan.
- Einfalt og áhrifaríkt: Þægileg lausn til að njóta góðs af Chaga á ferðinni eða heima.
-
Hrein framleiðsla: Hver skammtur inniheldur hreint og náttúrulegt Chaga duft án aukaefna.
Innihaldsefni: Chaga 500mg í hverju hylki og hylki úr jurtabeðmi
Nettóþyngd: 168 g
Shiitake Sveppaútdráttur – Náttúrulegt jafnvægi og kraftur
Shiitake sveppir hafa verið notaðir í árþúsundir og eru þekktir fyrir einstaka eiginleika sína. Með hágæða Shiitake útdrætti í þægilegum hylkjum geturðu auðveldlega innleitt þessa náttúrulegu viðbót í daglegt líf.
Af hverju að velja Shiitake útdrátt?
- Öflugur útdráttur: Náttúrulegur stuðningur með Shiitake sveppum
- Jafnvægi í lífinu: Hefðbundin notkun tengist vellíðan og orkustjórnun.
- Hreinleiki og gæði: Framleitt án aukaefna, fyrir þá sem meta hreinleika.
Ráðlagður skammtur:
Taktu 2 hylki á dag, eitt að morgni og eitt að kvöldi, með vatni eða máltíð.
Pakking:
- Hvert glas inniheldur 90 hylki fyrir 45 daga notkun.
Innihald: Shiitake extrakt (Fruiting body) 500mg í hylki
Hylki úr jurtabeðmi
Nettóþyngd: 168 g
Sýni 14 af 14

