Litla Greddublandan - STÆRRI

(4)

Fenugreek, maca, tribulus og sink í einni einfaldri blöndu — nú í tvöfalt stærri krukku.

  • Kynhvöt og lífskraftur
  • Hormónajafnvægi
  • Sink í glýsínatformi
  • Tvöfalt stærri krukka

6,990 kr

Til á lager

Pakkning: 180 hylki

Fljótleg og örugg afhending með Dropp og Póstinum.

Sent samdægurs á höfuðborgarsvæðinu ef pantað er fyrir kl. 12:00.

Frír sendingarkostnaður á pöntunum yfir 15.000 kr.

Ráðlagður dagskammtur: 6 hylki.

Virk innihaldsefni

Maca 1500 mg • Fenugreek 750 mg • Tribulus terrestris 750 mg

Steinefni

Sink glýsínat 7,5 mg

Pakkning

180 hylki • 30 daga • 6 hylki á dag • Nettóþyngd 277 g

Ofnæmisvaldar

Varan inniheldur enga þekkta ofnæmisvalda.

Hverjir ættu að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk?

Leitið ráðgjafar hjá lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni fyrir notkun ef þið:

  • Eruð þunguð eða með barn á brjósti.
  • Takið lyf eða glímið við undirliggjandi sjúkdóm.
  • Eruð með ofnæmi fyrir einhverjum innihaldsefna vörunnar.

Leiðbeiningar um notkun og geymslu

Fylgið ráðlögðum dagskammti. Ekki skal fara yfir ráðlagðan dagskammt. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu eða heilbrigðs lífsstíls. Geymið á köldum og þurrum stað, fjarri beinu sólarljósi. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Við höfum fylgst með ábendingunum ykkar og kynnum Litlu Greddublönduna í stærri útgáfu — tvöfalt meira í krukkunni, sama blandan. Fjögur hráefni, ekkert flækjustig: fenugreek, maca, tribulus og sink.

Maca (1500 mg)

Maca (Lepidium meyenii) hefur verið ræktað hátt í Andesfjöllum um aldir. Rannsóknir benda til þess að maca geti stutt við kynhvöt, streituþol og almenna vellíðan.

Fenugreek (750 mg)

Fenugreek (Trigonella foenum-graecum) er þrautrannsakað fræ úr matargerð og jurtahefð Miðausturlanda. Rannsóknir benda til þess að fenugreek geti stutt við kynhvöt, hormónastarfsemi og líkamlega frammistöðu.

Tribulus terrestris (750 mg)

Tribulus terrestris hefur lengi verið notað í ayurvedískri og kínverskri jurtahefð. Rannsóknir benda til þess að tribulus geti stutt við kynhvöt og hormónajafnvægi.

Sink glýsínat (7,5 mg)

Sink er gefið í glýsínatformi, sem frásogast vel. Sink stuðlar að eðlilegri frjósemi og eðlilegri æxlun, viðheldur eðlilegu magni testósteróns í blóði og stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.

Ráðlagður dagskammtur: 6 hylki. Takið hylkin helst með máltíð sem inniheldur fitu og prótein. Regluleg dagleg notkun skilar bestum árangri.

• Sent með Íslandspósti eða Dropp.

• Pantanir eru sendar samdægurs eða næsta virka dag.

• Frí sending þegar verslað er fyrir yfir 15.000 kr.

• Sjá nánar um sendingar og skil hér.

Öruggir greiðslumöguleikar

    Greiddu með korti eða dreifðu greiðslum með Netgíró.

    Litla Greddublandan - STÆRRI

    6,990 kr

    6,990 kr

    AFHVERJU INGLING

    Hvert innihaldsefni er valið með áherslu á gæði, uppruna og tilgang.

    Við leitumst við að nota hráefni sem styðja hvert annað og mynda heildstæða samsetningu, frekar en að velja sem flest innihaldsefni.

    Lífsþróttur er kjarninn í öllu sem við gerum.

    Markmið okkar er að þróa vörur sem styðja við daglega orku, jafnvægi og vellíðan svo þú getir notið hvers dags af meiri krafti.

    Við leggjum ríka áherslu á ábyrgt val á hráefnum, vandaðar samsetningar og framleiðslu samkvæmt ströngum gæðakröfum.

    Hver vara er þróuð með það að markmiði að sameina náttúru og þekkingu í lausnum sem þú getur treyst.

    Við trúum því að bestu lausnirnar verði til þegar náttúruleg hráefni og nútímaþekking vinna saman.

    Þess vegna byggjum við vörurnar okkar á vandlega völdum innihaldsefnum sem eru valin með bæði hefð og rannsóknir að leiðarljósi.

    ísland er hluti af sögu Ingling. Með framleiðslu hér heima getum við sameinað íslenskan uppruna, vandlega valin hráefni og ströng gæðaviðmið í vörum sem við erum stolt af að setja á markað.