Hormónastuðningur
Maca Root Extract (600 mg)
Maca (Lepidium meyenii) hefur verið notað í Andesfjöllum um aldir. Rannsóknir benda til þess að Maca geti stutt við hormónajafnvægi, aukið kynhvöt og bætt líðan kvenna við tíðahvörf. Einnig benda rannsóknir til þess að Maca geti stuðlað að auknu streituþoli og almennri vellíðan.
Shatavari Extract (300 mg)
Shatavari (Asparagus racemosus) er vel þekkt jurt í ayurvedískri hefð. Rannsóknir benda til þess að Shatavari geti stutt við hormónajafnvægi, reglulegan tíðahring, heilbrigða eggjastarfsemi og dregið úr einkennum tíðahvarfa.
Fenugreek Extract (350 mg)
Fenugreek (Trigonella foenum-graecum) inniheldur plöntuefnaestrógen sem geta stutt við hormónajafnvægi. Rannsóknir benda til þess að Fenugreek geti aukið kynhvöt, stutt við hormónastarfsemi og stuðlað að mjólkurframleiðslu hjá konum með barn á brjósti.
Ashwagandha Extract – vegan KSM-66® (200 mg)
Vegan KSM-66® Ashwagandha (Withania somnifera) er mest rannsakaða staðlaða útdráttarform ashwagandha. Rannsóknir benda til þess að vegan KSM-66® geti stutt við streituþol, dregið úr streitu og kvíða, stuðlað að bættum svefni og stutt við kynheilsu kvenna.
Rhodiola Rosea (150 mg)
Rhodiola Rosea er vel rannsakað adaptógen sem hefur lengi verið notað til að styðja við streituþol. Rannsóknir benda til þess að Rhodiola geti aukið orku, einbeitingu og andlegt úthald, auk þess að draga úr þreytu og oxunarálagi.
Chaste Tree Berry Extract (75 mg)
Chaste Tree Berry (Vitex agnus-castus) hefur lengi verið notað til að viðhalda góðu heilsufari kvenna. Rannsóknir benda til þess að Vitex geti stutt við hormónajafnvægi, reglulegan tíðahring og dregið úr einkennum fyrirtíðaspennu (PMS).
Orka, fókus og andleg skerpa
Cordyceps Extract (400 mg)
Cordyceps (Cordyceps sinensis) hefur verið notaður í hefðbundinni asískri læknisfræði um aldir. Rannsóknir benda til þess að Cordyceps geti stutt við orkuefnaskipti, aukið líkamlegt úthald, dregið úr þreytu og stutt við hormónajafnvægi.
Himalayan Shilajit Extract (200 mg, 40% Fulvic Acid)
Shilajit myndast við náttúrulegt niðurbrot plöntuefna í fjalllendi og er ríkt af fulvic sýru og snefilefnum. Rannsóknir benda til þess að Shilajit geti stutt við orkuframleiðslu frumna, efnaskipti, frjósemi og nýtingu næringarefna, þar á meðal CoQ10.
Green Tea Extract – L-theanine (150 mg)
L-theanine er amínósýra úr grænu tei sem tengist slökun og einbeitingu. Rannsóknir benda til þess að L-theanine geti dregið úr streitu og kvíða, aukið fókus og stuðlað að bættri hugrænni frammistöðu, sérstaklega samhliða koffíni.
Saffron Extract (30 mg)
Saffron (Crocus sativus) er vel rannsakað vegna áhrifa sinna á geðheilsu og líðan. Rannsóknir benda til þess að saffron geti stuðlað að betra skapi, dregið úr einkennum kvíða, stutt hormónajafnvægi og líðan kvenna á tíðahvörfum.
CoQ10 (75 mg)
CoQ10 gegnir lykilhlutverki í orkuframleiðslu frumna og hefur öfluga andoxandi eiginleika. Rannsóknir benda til þess að CoQ10 geti stutt við orkuefnaskipti, hjartaheilsu, heilastarfsemi og heilbrigði húðar.
Efnaskipti og náttúrulegur ljómi
Íslensk villt krækiber (Empetrum nigrum)
Íslensk villt krækiber eru rík af öflugum andoxunarefnum. Rannsóknir benda til þess að þau geti stutt við heilbrigði æða, verndað frumur gegn oxunarálagi og stuðlað að heilbrigði húðar og sjónar.
Íslensk villt aðalbláber (Vaccinium myrtillus)
Íslensk villt aðalbláber innihalda mikið magn anthósýanína og annarra andoxunarefna. Rannsóknir benda til þess að þau geti stutt við frumuvörn, heilbrigði húðar, sjón og eðlilega bólgusvörun.
Algalíf® Astaxanthin (4 mg virkt astaxanthín)
Algalíf® Astaxanthin er náttúrulegt andoxunarefni unnið úr örþörungum. Rannsóknir benda til þess að astaxanthín geti stutt við heilbrigði húðar, verndað frumur gegn oxunarálagi og stuðlað að sjón og bata eftir líkamlegt álag.
Steinefni og vítamín
Íslensk fjallagrös (150 mg)
Íslensk fjallagrös (Cetraria islandica) hafa verið nýtt hér á landi um aldir. Þau innihalda slímefni og beta-glúkana og hafa verið rannsökuð í tengslum við slímhúð í hálsi og öndunarvegi, meltingu og eðlilega bólgusvörun.
Zinc Glycinate (12 mg)
Sink styður við ónæmiskerfið, hormónajafnvægi og heilbrigði húðar, hárs og nagla. Glycinate-formið er vel frásoganlegt og hefur hátt líffræðilegt aðgengi.
Copper Bisglycinate (1 mg)
Kopar tekur þátt í orkuefnaskiptum, kollagenmyndun og eðlilegum járnflutningi. Bisglycinate-formið stuðlar að góðri frásogun.
Boron Citrate (7 mg)
Bór styður við efnaskipti steinefna og D-vítamíns og rannsóknir benda til þess að það geti einnig stutt við hormónastarfsemi.
Joð (130 mcg)
Joð er nauðsynlegt fyrir eðlilega starfsemi skjaldkirtils, orkuefnaskipti og taugakerfi.
Selenium Glycinate (100 mcg)
Selen styður við skjaldkirtil, ónæmiskerfið og vernd frumna gegn oxunarálagi. Glycinate-formið stuðlar að góðri frásogun.
Iron Bisglycinate (14 mg)
Járn styður við blóðmyndun, súrefnisflutning og orkuefnaskipti. Bisglycinate-formið er vel frásoganlegt og þolist almennt betur en hefðbundin járnsölt.
Vitamin D3 (50 mcg / 2000 IU)
D3-vítamín styður við ónæmiskerfið, bein, vöðva og eðlilega upptöku kalsíums. Það gegnir einnig mikilvægu hlutverki í almennri vellíðan.
Vitamin K2 (100 mcg, MK-7)
K2-vítamín (MK-7) vinnur með D3-vítamíni að eðlilegri nýtingu kalsíums og styður við heilbrigði beina og hjarta- og æðakerfis.