Svartur pipar (piperine)

Stutta svarið: Piperine er efnið sem gefur svörtum pipar skerpuna, og það sem gerir mörg bætiefni virkari. Það hægir á niðurbroti ýmissa efna í lifur og þörmum og getur margfaldað upptöku þeirra. Þekktasta dæmið: kúrkúmín úr túrmerik frásogast allt að 20× betur með piperine. Þess vegna er svartur pipar í Gyðju og Gylltu túrmeriki.

Hvað er piperine?

Alkalóíð sem er 5–9% af svörtum pipar. Staðlaður útdráttur er 95% piperine (vörumerkið BioPerine® er þekktast). Það hindrar ensím (glúkúróníðun og CYP3A4) sem brjóta niður efni áður en þau komast í blóðið.

Hvað segja rannsóknir?

  • Kúrkúmín: Shoba o.fl. (1998) sýndu 2.000% aukna upptöku kúrkúmíns með 20 mg piperine.
  • CoQ10, selen, B-vítamín: Rannsóknir sýna 30–60% bætta upptöku.
  • Efnaskipti: Rannsóknir benda til vægs stuðnings við hitamyndun.

Hverjir ættu að fara varlega?

Piperine eykur líka upptöku sumra lyfja. Ráðfærðu þig við lækni ef þú tekur lyf með þröngt öryggisbil (t.d. blóðþynnandi, flogaveikilyf, ónæmisbælandi).

Í þessum vörum frá Ingling

← Öll innihaldsefnin okkar