Kopar

Stutta svarið: Kopar er snefilefni sem þarf til að koma járni úr geymslu í blóðið, mynda kollagen og verja frumur gegn oxun. Það er í Krafti og Gyðju af einni praktískri ástæðu: sink til lengri tíma lækkar kopar, og járn án kopars nýtist illa. Lítill skammtur heldur jafnvæginu.

Hvað gerir kopar?

Hluti af ensímum sem mynda kollagen og elastín (húð, æðar, bein), melanín (hár, húð), og sem flytja járn (ceruloplasmín). Heimilaðar EB-fullyrðingar: kopar stuðlar að eðlilegum járnflutningi, viðhaldi eðlilegra bandvefja og eðlilegri litun hárs og húðar.

Hverjir ættu að fara varlega?

Fólk með Wilsons-sjúkdóm má ekki taka kopar. Ekki fara yfir 5 mg á dag.

Í þessum vörum frá Ingling

← Öll innihaldsefnin okkar