KSM-66: ekki bara Ashwagandha
Jæja nú er kominn tíminn til að ræða aðeins um KSM-66 Ashwagandha
Hvað er það sem gerir KSM-66 svo sérstakt og af hverju er það 3x dýrara en venjulegt Ashwagandha?
KSM-66 er sérútdráttur af Ashwagandha unnin að hefðbundnum ayurvedic siði, Ayurveda er þekkt sem indverskar jurtalækningar einnig. Þar er rót plöntunnar unnin með mjólk þar sem „orka“ þeirra vinnur saman. Í hinum vestræna heimi er einfaldasta útskýringin að mjólkin bætir upptöku virku efnanna þ.e.a.s. Withanolides. Þessi staðlaða aðferð tryggir því að gæðin og áhrifin eru alltaf eins: á toppnum. Venjulegt Ashwagandha duft er með 0,3-1,5% withanolides, KSM-66 er staðlað í minnst 5%. Það þarf því 3-6 g af venjulegu dufti til að ná því sem 600 mg af KSM-66 gefa. Þannig þó það sé 3x dýrara þá er það 5-10x sterkara.
Hefurðu séð rannsóknirnar? Vissir þú að mestmegnis af þeim rannsóknum sem gerðar eru á Ashwagandha nota KSM-66, það er staðlað og hagar sér alltaf eins í líkamanum. Áður en við tökum nokkrar rannsóknir sem dæmi þá er vert að tala um lífeðlisfræðilega virkni Ashwagandha, rætur jurtarinnar vinna beint gegn streitu og kortisóli með því að styrkja álagskerfið þá hvernig líkaminn höndlar streitu, bæði séða og óséða.

Í rannsókn Chandrasekhar o.fl. (2012) þar sem 64 tóku þátt í, féll kortisól um 27,9% hjá þeim sem tóku 600 mg af KSM-66 á dag og streita um 44%. 600mg skammturinn sýndi líka talsverða minnkun á kvíða í Salve o.fl. (2019) en á Íslandi hefur MAST set daglegt hámark að 450mg og öll íslensk framleiðsla er því bundinn því.
KSM-66 hefur einnig sýnt fram á marktæk áhrif á svefn og styrk líkt og í Wankhede o.fl. (2015) þar sem miðað við lyfleysu þá jókst styrkur og testósterón á meðan minnkaði fituprósenta og vöðvaskaði hjá hópnum sem tók KSM-66 yfir 8 vikur. Það tóku 57 ungir menn þátt í rannsókninni. Með svefn í rannsókn Langade o.fl. (2019) tóku 60 manns með svefnleysi KSM-66 í 10 vikur. Þau sofnuðu fyrr, sváfu lengur og svefngæðin bötnuðu verulega miðað við lyfleysu.
Við nýtum okkur öll áhrif KSM-66 sem eru sýnd í þessum rannsóknum í formúlunum okkar bæði Gyðju og Kraft. Fyrir svefninn nýtum við KSM-66 í Djúpum svefni. KSM-66 og samstarfið á milli Inglings og Ixoreal er því ein af sterkustu undirstöðum okkar vara.
Heimildir
Chandrasekhar, K., Kapoor, J., & Anishetty, S. (2012). A prospective, randomized double-blind, placebo-controlled study of safety and efficacy of a high-concentration full-spectrum extract of ashwagandha root in reducing stress and anxiety in adults. Indian Journal of Psychological Medicine, 34(3), 255–262. https://doi.org/10.4103/0253-7176.106022
Langade, D., Kanchi, S., Salve, J., Debnath, K., & Ambegaokar, D. (2019). Efficacy and safety of ashwagandha (Withania somnifera) root extract in insomnia and anxiety: A double-blind, randomized, placebo-controlled study. Cureus, 11(9), e5797. https://doi.org/10.7759/cureus.5797
Matvælastofnun. (2021). Ashwagandha – Álit Matvælastofnunar. https://www.mast.is/static/files/upplysingar/Faedurbotaefni/alit-mast-may-2021-ashwagandha.pdf
Salve, J., Pate, S., Debnath, K., & Langade, D. (2019). Adaptogenic and anxiolytic effects of ashwagandha root extract in healthy adults: A double-blind, randomized, placebo-controlled clinical study. Cureus, 11(12), e6466. https://doi.org/10.7759/cureus.6466
Wankhede, S., Langade, D., Joshi, K., Sinha, S. R., & Bhattacharyya, S. (2015). Examining the effect of Withania somnifera supplementation on muscle strength and recovery: A randomized controlled trial. Journal of the International Society of Sports Nutrition, 12, 43. https://doi.org/10.1186/s12970-015-0104-9
Share

