Tilkynning frá Ingling ehf.
Innköllun á Kraft og Fadogia agrestis ((e. Vangueria agrestis (Schweinf. ex Hiern)).
Frá því Ingling hóf sölu vara sinna fyrir u.þ.b. tveimur árum fram til 25. júní 2025 var
innihaldsefnið Fadogia Agrestis löglegt í Evrópu. Þann 25. júní 2025 var Fadogia Agrestis sett á
lista Evrópusambandsins sem ,,nýfæði“ sem þýðir að hráefnið var ekki notað í stórum stíl fyrir
15. maí 1997 innan Evrópusambandsins, en engin áhættutilkynning varðandi vöruna hefur
verið gefin út af hálfu yfirvalda. Þegar vara fer á þann lista er bannað að selja hana nema með
sérstöku markaðsleyfi útgefnu af Evrópusambandinu sem kostar tugi milljóna. Það ferli er
eitthvað sem lítil íslensk framleiðslufyrirtæki geta ekki staðið undir fjárhagslega.
Fadogia Agrestis var bæði selt af Ingling eitt og sér og síðan sem eitt af mörgum innihaldsefnum
í vörunni Kraft Test Booster.
Við viljum greina frá atburðarásinni sem átti sér stað fyrir 25. september sl. þegar yfirvöld
upplýstu okkur um að Fadogia væri komið á lista yfir nýfæði. Frá 25. júní 2025, þegar Fadogia
Agrestis var skráð á lista yfir nýfæði af Evrópusambandinu, hafa yfirvöld framkvæmt tvær
úttektir á öllum vörumiðum (e. label) á þeim vörum sem Ingling framleiðir og dreifir hér á landi.
Engar athugasemdir voru gerðar þrátt fyrir að tvær af vörum Ingling hafi innihaldið Fadogia
Agrestis. Þremur vikum síðar var krafist innköllunar á vörunni án fyrirvara og gerð krafa um að
öllum viðkomandi vörum yrði fargað. Á sama tíma fá erlend vörumerki að bjóða íslenskum
neytendum innihaldsefnið Fadogia Agrestis hér á landi og hagnast á því meðan lítil íslensk
fyrirtæki sitja uppi með verulega aukin kostnað sem er afleiðing hins erlenda regluverks.
Hvað er nýfæði ?
Nýfæði er samheiti yfir matvæli sem ekki voru hefðbundin neysluvara í ríkjum
Evrópusambandsins fyrir 15. maí 1997 þegar reglugerð ESB um nýfæði tók gildi.
Dæmi um skilgreint nýfæði er chia fræ, en fyrir 15. maí árið 1997 var lítil sem engin neysla á
chia fræjum innan Evrópusambandsins. Þess vegna teljast chia fræ sem nýfæði innan
Evrópusambandsins. Hins vegar veitti framkvæmdarstjórn ESB árið 2009 leyfi fyrir notkun
þeirra og leyfið var síðar víkkað út þannig að nú má selja chia fræ og nota þau í vörum.
Hér er að finna hlekk á leitarvél Evrópusambandsins fyrir þau hráefni sem eru skráð sem nýfæði
af ESB : https://ec.europa.eu/food/food-feed-portal/screen/novel-food-catalogue/search
Er verið að innkalla Fadogia Agrestis þar sem um er að ræða hættuleg fæðubótarefni?
Nei, ekki er verið að innkalla Fadodia Agrestis vegna sérstakrar hættu. Hvorki Fadogia Agrestis
né Kraftur Test Booster eru talin skaðleg fæðubótarefni. Ástæða þess að verið er að innkalla
framangreindar vörur er að Fadogia Agrestis var skilgreint þann 25. júní 2025 sem nýfæði í
Evrópu.
Leyfi til að dreifa hráefni sem flokkast sem nýfæði samkvæmt Evrópusambandinu kostar
verulegar fjárhæðir og lítil fyrirtæki eins og Ingling ehf. hafa ekki fjárhagslega burði, eins og
sakir standa, til þess að standa straum af þeim kostnaði sem hlýst af slíku umsóknarferli, þó að
mikill áhugi sé fyrir hendi af hálfu Ingling ehf., enda er um vinsæla og góða vöru að ræða.
Þegar Ingling ehf. byrjaði að selja Fadogia Agrestis árið 2024 var hráefnið ekki á lista yfir nýfæði
og var því sala þess lögleg til 25. júní 2025. Þegar Ingling ákveður að hefja sölu á nýjum vörum
er ávallt farið vel yfir lista Evrópusambandsins til að ganga úr skugga um að öll hráefni séu
lögleg til dreifingar á Evrópska efnahagssvæðinu.
Ingling fékk enga tilkynningu frá yfirvöldum að til stæði að setja Fadogia Agrestis á lista yfir
nýfæði. Engin aðlögunartími var veittur og er um að ræða mikið tjón fyrir lítið fyrirtæki vegna
innköllunar, prentun á nýjum vörumiðum og förgun á vörum og hráefnum. Í þessu sambandi
skal einnig tekið fram að þann 5. september 2025 var varan Kraftur Test Booster innkölluð
samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda vegna skorts á varúðarmerkingum, en á sama tíma
var engin athugasemd gerð við að varan innihéldi Fadogia Agrestis, þrátt fyrir að það hafi verið
skráð sem nýfæði þann 25. júní 2025. Þá er ítrekað að enn er hægt er hægt að versla Fadogia
Agrestis hér á landi frá erlendum vörumerkjum.
Við hjá Ingling gerum okkur grein fyrir því að endanleg ábyrgð hvílir ávallt á okkar herðum sem
matvælafyrirtæki, sbr. b-lið 8. gr. laga um matvæli nr. 93/1995. Ingling leggur ríka áherslu á að
allt það úrvals hráefni sem fyrirtækið notar í framleiðslu standist gerðar kröfur yfirvalda í þeim
efnum. Ofangreind umfjöllun sýnir að hlutirnir geta verið fljótir að breytast og því mikilvægt
að fylgjast vel með og eftir atvikum upplýsa viðskiptavini og neytendur eins vel og hægt er
hverju sinn m.t.t. aðstæðna.
Hvað er Fadogia Agrestis?
Fadogia er ættkvísl blómaplantna sem eiga náttúrulegan uppruna sinn í hitabeltis- og
savannasvæðum Afríku, einkum í Nígeríu, Súdan og nágrannaríkjum. Nokkrar tegundir innan
ættkvíslarinnar hafa lengi verið notaðar í hefðbundnum afrískum lækningum, meðal annars
sem náttúrulegt orku- og frjósemislyf.
Á síðustu tveimur áratugum hefur áhugi á Fadogia Agrestis, einni þekktustu tegundinni, aukist
bæði í Evrópu og Norður-Ameríku, þar sem hún er (var í Evrópu) markaðssett sem náttúrulegt
fæðubótarefni sem stuðlar að aukinni líkamlegri orku, kynhvöt og testósterónframleiðslu. Sala
þessara vara hófst á evrópskum markaði um og eftir árið 2010, aðallega í gegnum netverslanir
og heilsuvörukeðjur, en hefur aukist verulega með vaxandi eftirspurn eftir plöntumiðuðum
virkum efnum og náttúrulegum valkostum við hefðbundin hormónaefni.
Upplýsingar um að leyfilegt sé að skila þeim vörum sem um ræðir.
Vörurnar hafa verið seldar í verslunum hér á landi og á sölusíðu Ingling.is. Umrædd innköllun á
við um allar framleiðslulotur til dagsins 25. september 2025.
Þeir viðskiptavinir sem hafa verslað Kraft Test Booster og/eða Fadogia Agrestis er að sjálfsögðu
heimilt að skila vörunni gegn fullri endurgreiðslu í þeirri verslun þar sem hún var keypt eða með
því að setja sig í samband við Ingling (ingling@ingling.is).
Ingling biður viðskiptavini sína innilega afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Ingling hefur þegar breytt hráefnisblöndunni í Kraft og er Kraftur kominn aftur í sölu með meiri
Kraft frá Ingling.
Fyrir nánari upplýsingar um innköllun varanna er hægt að senda tölvupóst á netfangið
ingling@ingling.is
www.ingling.is
Virðingarfyllst, f.h. Ingling ehf.
Andri Rúnar Gunnarsson
Daníel Ingi Bergmann Garðarsson